Nýherji skilar 169 mkr rekstrarhagnaði fyrir afskriftir á þriðja ársfjórðungi Helstu niðurstöður • 169 mkr EBITDA á þriðja ársfjórðungi, en EBITDA var 107 mkr á sama tímabili 2009. • 132 mkr heildarhagnaður á fyrstu níu mánuðunum, en heildartap var 178 mkr á sama tímabili í fyrra. • Nýherji hf. jók hlutafé um 840 mkr að markaðsvirði. • Lokið er samningum við viðskiptabanka félagsins um endurskipulagningu langtímalána. • Fasteign Nýherja verður seld á 1.650 mkr, samhliða því að félagið gerir leigusamning til 15 ára. • Áætlað að vaxtaberandi skuldir félagsins lækki um 2.600 mkr. Þórður Sverrisson, forstjóri: „Mjög jákvæð þróun hefur verið í rekstri Nýherja og innlendra dótturfélaga á árinu og er afkoman ágæt í þriðja ársfjórðungi 2010. Eftirspurn eftir tölvu- og tæknibúnaði hefur aukist og er sala umfram áætlanir. Eftir umtalsverða fækkun sérfræðinga á sviði hugbúnaðar hefur náðst jafnvægi við eftirspurn eftir hugbúnaðarþjónustu innanlands og skilar sú starfsemi nú hagnaði. Nýherji jók hlutafé um 120 mkr að nafnvirði og seldi fjárfestum á genginu 7,0. Samhliða var lokið samningum við viðskiptabanka félagsins um endurskipulagningu á langtímalánum. Heildaráhrif aðgerðanna eru að eigið fé félagsins styrkist um nálægt einn milljarð króna. Hlutafjáraukningin, sala fasteignar og lækkun höfuðstóls skulda mun lækka vaxtaberandi skuldir um 2.600 mkr. Að loknum þessum aðgerðum verður fjárhagsstaða Nýherja orðin sterk á ný og eiginfjárhlutfall félagsins verður yfir 30% í lok árs. Félagið mun leggja megináherslu á að bæta afkomuna enn frekar með áframhaldandi breytingum til hagræðingar í rekstrinum.“ Rekstrarniðurstaða fyrir þrjá ársfjórðunga 2010 Sala á vöru og þjónustu nam 10.273 mkr fyrstu 9 mánuði ársins 2010, samanborið við 10.339 mkr á sama tímabili árið áður. Laun og launatengd gjöld námu 4.162 mkr, en voru 4.521 mkr fyrir sama tímabil árið áður. Laun vegna erlendrar starfsemi hafa lækkað um 125 mkr. Meðalfjöldi stöðugilda fyrstu 9 mánuði ársins 2010 var 565 en var 652 fyrir sama tímabil árið áður. Rekstrarkostnaður var um 1.413 mkr, en var 1.826 mkr yfir sama tímabil í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta - EBITDA - var 327 mkr á tímabilinu en EBITDA var neikvæð um 9 mkr árið áður. Hrein fjármagnsgjöld voru 151 mkr í samanburði við 504 mkr á sama tímabili árið 2009. Heildarhagnaður fyrstu 9 mánuði ársins 2010 var 132 mkr en heildartap fyrstu 9 mánuði ársins 2009 nam 178 mkr. Heildareignir í lok tímabilsins voru 9.970 mkr samanborið við 9.595 mkr í lok ársins 2009. Langtímaskuldir hafa hækkað frá árslokum úr 1.526 mkr í 2.564 mkr en samhliða því hafa skammtímaskuldir lækkað frá árslokum úr 6.805 mkr í 5.183 mkr. Vaxtaberandi skuldir námu 5.100 mkr, en voru 5.537 mkr í ársbyrjun 2010. Eigið fé í lok september 2010 var 2.223 mkr og er eiginfjárhlutfall nú 22,3% en var 13,2% um síðustu áramót. Rekstrarniðurstaða á þriðja ársfjórðungi 2010 Sala á vöru og þjónustu nam 3.234 mkr í þriðja ársfjórðungi, samanborið við 3.301 mkr á sama tímabili árið 2009 og hafa tekjur því lækkað um 2% frá þriðja ársfjórðungi 2009. Laun og launatengd gjöld námu 1.187 mkr en voru 1.357 mkr fyrir sama tímabil 2009. Meðalfjöldi stöðugilda í þriðja ársfjórðungi var 553 en var 631 á sama tíma í fyrra. Launakostnaður innanlands hefur lækkað um 47 mkr frá því á þriðja ársfjórðungi 2009. Laun starfsmanna erlendis hafa lækkað um 123 mkr milli þriðja ársfjórðungs 2009 og 2010. Rekstrarkostnaður var 434 mkr í þriðja ársfjórðungi en var 527 mkr á sama tíma á árinu 2009. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta - EBITDA - var 169 mkr á tímabilinu en EBITDA var 107 mkr á sama tímabili fyrir árið 2009. Hrein fjármagnsgjöld voru 73 mkr í þriðja ársfjórðungi í samanburði við 171 mkr í þriðja ársfjórðungi 2009. Heildarhagnaður í fjórðungnum nam 32 mkr, en heildartap í þriðja ársfjórðungi í fyrra nam 107 mkr. Samningar við banka og aukning hlutafjár Nýherji jók í þriðja ársfjórðungi hlutafé um 120 mkr að nafnvirði. Félagið gekk frá samningum við fjárfesta um kaup á því hlutafé á genginu 7,0 og var heildar söluverð því 840 mkr. Einnig var gengið frá samningum við Arion banka annars vegar og Íslandsbanka hins vegar um endurskipulagningu á langtímalánum félagsins, þar sem greiðslutími verður lengdur. Til að lækka skuldir félagsins enn frekar hefur Nýherji gert samning um sölu á fasteign félagsins við Borgartún 37 og er söluverðið 1.650 mkr. Samhliða hefur félagið gert 15 ára leigusamning um Borgartún 37. Yfirlit yfir rekstur Eftirspurn eftir tölvubúnaði og tæknilausnum fór vaxandi á þriðja ársfjórðungi hjá samstæðunni, einkum á fyrirtækjamarkaði. Sala á IBM netþjónum og gagnageymslulausnum og Lenovo tölvubúnaði var talsvert umfram áætlun. Þá jókst eftirspurn eftir IBM hugbúnaði og Canon fjölnota prentbúnaði í fjórðungnum. Sala á sviði hljóð- og myndlausna var samkvæmt áætlunum, en meðal annars var unnið verkefni fyrir Háskólann á Akureyri. Sala á neytendabúnaði, svo sem sjónvörpum og myndavélum frá Canon og Sony, var stöðug. Rekstrar- og hýsingarþjónusta samstæðunnar hefur lagt áherslu á hagræðingu og lækkun rekstrarkostnaðar sem hefur skilað sér í bættri afkomu þrjá ársfjórðunga í röð og er að nást jafnvægi í þessari starfsemi. Aukin eftirspurn er eftir útstöðvaþjónustu og alrekstri í prentþjónustu. Þá hefur verið samið við landskjörstjórn um rafræna skönnun við talningu á atkvæðaseðlum fyrir stjórnlagaþing í nóvember. Rekstur innlendra eininga á sviði viðskiptahugbúnaðar gekk vel á tímabilinu. Þjónusta og vörusala var talsvert umfram væntingar. Vöruframboð var eflt með smíði á lausnum og þekking aukin á stefnumótandi þáttum, svo sem á sviði viðskipgreindar. Verkefnastaða og horfur, bæði á innlendum og erlendum vettvangi, eru vænlegar. Góð afkoma var í sölu hugbúnaðalausna sem hafa verið þróaðar af hugbúnaðarfyrirtækjum samstæðunnar. Unnið var að þróun á Sögu sjúkraskrárkerfi í samstarfi við Landspítalann og heilbrigðisráðuneytið auk verkefna sem tengjast rafrænum sendingum yfir Heklu heilbrigðisnet, en með rafrænum sendingum heilbrigðisgagna má ná fram mikilli hagræðingu fyrir aðila á heilbrigðissviði og bæta þjónustu við sjúklinga. Þá voru smærri hugbúnaðarlausnir seldar yfir netið til fyrirtækja víða um heim og unnið að hugbúnaðarverkefnum í Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og í Mið-Austurlöndum. Jafnvægi er að nást í innlendri hugbúnaðarþróun og afkoma betri en á sama tíma í fyrra. Afkoma af starfsemi Applicon í Svíþjóð er ágæt og í samræmi við áætlun en meðal samninga við fyrirtæki má nefna Álandsbankann, Nordea og TeliaSonera. Rekstur Applicon í Danmörku skilar jákvæðri afkomu en er undir áætlun. Dansupport skilar nú jákvæðri afkomu en tap var á rekstri þess félags á síðasta ári. Samkvæmt spá greiningafyrirtækja mun eftirspurn eftir þjónustu í upplýsingatækni á Norðurlöndum fara vaxandi og mun það styrkja rekstur félaganna erlendis. Horfur Rekstur Nýherja og dótturfélaga hefur styrkst á undanförnum ársfjórðungum og eru horfur fyrir fjórða ársfjórðung góðar. Jafnvægi fer að skapast í rekstri félagsins m.v. núverandi eftirspurn og stöðu í efnahagsmálum. Ágætar horfur eru um að afkoma af rekstri samstæðunnar haldi áfram að batna á næstu misserum, verði ekki bakslag í efnahagsþróun hérlendis. Fjárhagsdagatal fyrir 2010: 28. janúar 2011 - Ársuppgjör Samþykkt árshlutareiknings Árshlutauppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2010 var samþykkt á stjórnarfundi Nýherja hf. 22. október 2010. Árshlutauppgjör Nýherja hf. er gert í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting Standards). Árshlutauppgjörið hefur hvorki verið endurskoðað né kannað af endurskoðendum félagsins. Nánari upplýsingar Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630. Nýherji hf. Hlutverk Nýherja hf. er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina. Nýherji býður fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og vandaðan tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og rekstrarþjónustu. Félög Nýherjasamstæðunnar í rekstri eru 18 bæði hér heima og erlendis og eru stöðugildi 540. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands). Stjórn Nýherja: Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson. Þórður Sverrisson er forstjóri Nýherja.