NASDAQ OMX Iceland hf. hefur samþykkt að PricewaterhouseCoopers ehf. verði viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North.
Til að gerast CA á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla ákveðin skilyrði. Þau helstu eru að CA þarf að:
- vera lögaðili
- hafa nægilega marga starfsmenn
- tryggja að starfsmenn CA séu hæfir og búi yfir nægilegri reynslu í fjármálaþjónustu við fyrirtæki
- setja innri reglur um viðskipti með hluti í félögum sem fyrirtækið starfar fyrir sem CA
- hafa verklag og vinnureglur um skráningu og vistun upplýsinga
First North Iceland býður PricewaterhouseCoopers ehf.velkomiðtil starfa sem Certified Adviser.