Föstudaginn 5. apríl 2013 kl. 11:00 var haldinn aðalfundur hjá Reitum II á skrifstofu félagsins í Kringlunni í Reykjavík.
Hér má sjá helstu niðurstöður fundarins:
- Ársreikningur og skýrsla stjórnar voru samþykkt.
- Samþykkt var tillaga um að greiða ekki út arð vegna ársins 2012.
- KPMG hf. var endurkjörið sem endurskoðendur félagsins.
- Samþykkt var tillaga um að breyta fjölda stjórnarmanna úr þremur í einn.
- Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags hf., var kjörinn sem stjórnarmaður
- Elín Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia ohf., var kjörin sem varamaður.
- Samþykkt var tillaga um að starfskjarastefna félagsins verði sú sama og hjá móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf.
- Samþykkt var tillaga um að stjórnarmenn fái áfram enga þóknun fyrir störf sín.