Össur - Ársuppgjör 2013


Fjórði ársfjórðungur 2013

  • Hagnaður og hagnaður á hlut jukust um 75% milli ára. Hagnaðurinn nam 14 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 8 milljónir dala á fjórða ársfjórðungi 2012.
  • Sala nam 128 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 98 milljónir dala á fjórða ársfjórðungi 2012. Söluvöxtur var 29%, þar af 7% innri vöxtur, hvortveggja mælt í staðbundinni mynt.
  • EBITDA jókst um 69% og nam 24 milljónum Bandaríkjadala og 19% af sölu, samanborið við 14 milljónir dala og 15% af sölu á fjórða ársfjórðungi 2012. Leiðrétt fyrir áhrifum af keyptum félögum var EBITDA 20% af sölu.
  • Handbært fé frá rekstri jókst um 14% og nam 29 milljónum Bandaríkjadala.

Ársuppgjör 2013

  • Hagnaður og hagnaður á hlut jukust um 8% milli ára. Hagnaðurinn nam 41 milljón Bandaríkjadala og 9% af sölu, samanborið við 38 milljónir dala og 9% af sölu 2012.
  • Sala nam 436 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 399 milljónir dala  2012. Söluvöxtur var 9%, þar af 2% innri vöxtur, hvortveggja mælt í staðbundinni mynt.
  • Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 12%, þar af 2% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
  • Sala á stoðtækjum jókst um 6%, þar af 4% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
  • Framlegð nam 270 milljónum Bandaríkjadala og 62% af sölu, samanborið við 248 milljónir Bandaríkjadala og 62% af sölu 2012.
  • EBITDA framlegð nam 75 milljónum Bandaríkjadala og 17% af sölu, samanborið við 70 milljónir dala og 18% af sölu 2012. Leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði og áhrifum af keyptum félögum var EBITDA 19% af sölu.
  • Handbært fé frá rekstri er áfram sterkt og nam 73 milljónum Bandaríkjadala og 17% af sölu, samanborið við 71 milljón dala og 18% af sölu 2012.
  • Á árinu var gengið frá þremur fyrirtækjakaupum. Sala frá keyptum fyrirtækjum nemur 26 milljónum dala 2013.
  • Aðgerðir til að draga úr kostnaði sem vonu framkvæmdar á fyrri helmingi ársins, skiluðu 5 milljónum Bandaríkjadala í sparnað 2013.

Áætlun 2014

Áætlun stjórnenda fyrir árið:

  • Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 14-16%.
  • Innri söluvöxtur á bilinu 2-4%, mælt í staðbundinni mynt.
  • EBITDA sem hlutfall af veltu, á bilinu 17-19%.
  • Fjárfestingar (CAPEX), á bilinu 2,5-3,5%.
  • Virkt skatthlutfall í um 26%.

Jón Sigurðsson, forstjóri:

"Síðasta fjórðungur ársins var mjög góður endir á árinu. Fjórði ársfjórðungur er annar fjórðungurinn í röð þar sem við sjáum mjög góðan rekstrarhagnað og áframhaldandi sterkt sjóðsstreymi.  Aðhaldsaðgerðirnar sem við hófum á öðrum ársfjórðungi hafa skilað tilætluðum árangri. Enn eitt árið sýnir  EMEA mjög góðan árangur og á Bandaríkjamarkaði sáum við merki um jákvæða þróun á seinni hluta ársins. Eins og á undanfönum árum náðum við mjög góðum árangri í Asíu. Á árinu styrktum við stöðu okkar og gengum frá kaupum á þremur fyrirtækjum."

Össur hf. Ársuppgjör 2013 - Hádegisverðarfundur  með markaðsaðilum fimmtudaginn 6. febrúar

Fimmtudaginn 6. febrúar kl. 11:00 verður símafundur með fjárfestum og kl. 12:00, í kjölfarið á símafundinum, býður félagið markaðsaðilum á Íslandi á hádegisverðarfund þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri munu fara yfir niðurstöður fjórða ársfjórðungs og ársins í heild.
Innhringinúmer fyrir símafund: 800-8660

Hádegisverðaarfundur 6. febrúar kl. 12:00
Staður: Össur hf, Grjótháls 5, 4. hæð


Pièces jointes

Q4 2013 Investor Presentation Ossur Press Release Q4 2013 English Ossur financial statement 31.12.2013
GlobeNewswire