Í dag 10. apríl 2014 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2013 tekinn til fyrri umræðu í bæjarráði. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri umræða í bæjarstjórn verður 30. apríl n.k. og seinni umræða verður 15. maí 2014.
Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra. Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum.
Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2013 byggir á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur.
Helstu lykiltölur:
Rekstrartekjur ársins 2013 | Sveitarsjóður | Samantekið | ||
í þús. k.r. | A hluti | A og B hluti | ||
Ársreikningur | Áætlun | Ársreikningur | Áætlun | |
Rekstrartekjur | 855.466 | 850.759 | 924.266 | 922.223 |
Rekstrargjöld án afskrifta | 768.610 | 744.185 | 797.092 | 769.515 |
Rekstrarniðurstaða án fjármagns liða | 86.856 | 106.574 | 127.174 | 152.708 |
Afskriftir | -41.426 | -37.099 | -56.651 | -52.275 |
Fjármagnsliðir | -59.891 | -67.494 | -88.791 | -96.333 |
Rekstrarniðurstaða | -14.461 | 1.981 | -18.268 | 4.100 |
Efnahagur samstæðu | Sveitarsjóður | Samantekið | ||
pr. 31.12.2013 í þús. k.r. | A hluti | A og B hluti | ||
Ársreikningur | Fyrra ár | Ársreikningur | Fyrra ár | |
Eignir | ||||
Fastafjármunir | 2.003.657 | 2.003.549 | 2.187.506 | 2.185.393 |
Veltufjármunir | 281.575 | 299.534 | 103.367 | 130.704 |
Eignir samtals | 2.285.232 | 2.303.083 | 2.290.873 | 2.316.097 |
Skuldir og eigið fé | ||||
Eigið fé | 1.045.676 | 1.051.785 | 853.985 | 863.902 |
Skuldbindingar | 217.504 | 209.859 | 217.504 | 209.859 |
Langtímaskuldir | 857.740 | 846.727 | 1.017.483 | 1.013.490 |
Skammtímaskuldir | 164.312 | 194.712 | 201.901 | 228.846 |
Skuldir og eigið fé samtals | 2.285.232 | 2.303.083 | 2.290.873 | 2.316.097 |
Sjóðsstreymi ársins | Sveitarsjóður | Samantekið | ||
2013 í þús. kr. | A hluti | A og B hluti | ||
Ársreikningur | Áætlun | Ársreikningur | Áætlun | |
Rekstrarniðurstaða | -14.461 | 1.981 | -18.269 | 4.100 |
Veltufé frá rekstri | 70.486 | 74.217 | 85.845 | 106.242 |
Handbært fé frá rekstri | 37.398 | 89.962 | 53.598 | 121.242 |
Fjárfestingarhreyfingar | -32.517 | -35.100 | -41.019 | -46.390 |
Fjármögnunarhreyfingar | -33.466 | -23.893 | -41.164 | -37.728 |
Hækkun á handbæru fé | -28.585 | 30.969 | -28.585 | 37.124 |
Í hlutfalli við rekstrartekjur | Sveitarsjóður | Samantekið | ||
A hluti | A og B hluti | |||
Ársreikningur | Áætlun | Ársreikningur | Áætlun | |
Skatttekjur | 60,54% | 59,38% | 58,83% | 56,75% |
Framlög jöfnunarsjóðs | 21,21% | 20,92% | 19,63% | 19,30% |
Aðrar tekjur | 18,24% | 27,91% | 23,09% | 25,75% |
Samtals | 99,99% | 108,46% | 101,55% | 101,80% |
Laun og launatengd gjöld | 57,56% | 55,02% | 54,36% | 50,76% |
Lífeyrisskuldbinding, breyting | 0,00% | 0,00% | 0,00% | 0,00% |
Annar rekstrarkostnaður | 32,29% | 35,43% | 31,88% | 32,69% |
Afskriftir | 4,84% | 6,14% | 6,13% | 5,67% |
Fjármagnsliðir, nettó | 7,00% | 11,32% | 9,61% | 10,45% |
Gjöld samtals | 101,69% | 107,91% | 101,98% | 99,57% |
Rekstrarniðurstaða, (neikvæð) | -1,70% | 7,91% | -0,43% | 2,23% |
Í krónum á íbúa | Ársreikningur | Áætlun | Ársreikningur | Áætlun |
Rekstur | ||||
Rekstrartekjur samtals: | 769.304 | 765.071 | 831.175 | 829.338 |
Rekstrargjöld og fjármagnliðir: | 782.309 | 763.290 | 847.603 | 825.651 |
Rekstrarniðurstaða, (neikvæð) | -13.005 | 1.782 | -16.428 | 3.687 |
Í þúsundum á íbúa | Ársreikningur | Ársreikningur | Ársreikningur | Ársreikningur |
Efnahagur | 2013 | 2012 | 2011 | 2010 |
Eignir | 2.055 | 2.071 | 2.036 | 2.073 |
Eigið fé | 940 | 946 | 885 | 956 |
Skuldir og skuldbindingar | 1.115 | 1.126 | 1.150 | 1.118 |
Ábyrgðir og skuldbindingar | 148 | 164 | 160 | 167 |
utan efnahags | ||||
Aðrar lykiltölur | 2013 | 2012 | 2011 | 2010 |
Veltufjárhlutfall | 1,71 | 1,54 | 1,36 | 1,50 |
Eiginfjárhlutfjall | 45,76% | 45,67% | 43,47% | 46,11% |
Íbúatala 1.desember | 1.095 | 1.112 | 1.108 | 1.100 |
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 922,2 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki, en þar af námu rekstrartekjur A-hluta þ.e. bæjarsjóðs 855,5 millj. kr.
Rekstrargjöld A og B hluta námu 797,1 millj. Þar af námu rekstrargjöld A-hluta bæjarsjóðs 768,6 millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga starfsfólks. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var neikvæð um 14,5 millj. samkvæmt ársreikningi en neikvæð um 18,3 millj. kr. í samanteknum ársreikningi A og B hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2013 nam, eftir að lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 854,0 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 1.045,7 millj. kr.
Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er neikvæð um 18,3 millj. kr. miðað við 4,5 millj. kr. hagnað á árinu 2012.
Meginátæður eru fyrir þessu eru:
- Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs A-hluti var neikvæð um 14,5 millj. 2013 miðað við 11,0 millj. kr. hagnað á árinu 2012. Helstu ástæður þessarar rekstrarniðurstöðu má rekja til þess að rekstartekjur hækkuð aðeins um 9,7 milljónum kr. milli ára, meðan rekstarútgjöld hækkuðu um 35,1 milljónum kr. vegur þar þyngst hækkun launa og lífeyrisskuldbindinga.
- Í öðru lagi er jákvætt að Hafnarsjóður var rekinn með u.þ.b. 2,4 millj. kr. hagnaði miðað við 3,1 milljón kr. hagnað árinu á undan.
- Í þriðja lagi skilar Fráveita 1,7 milljón kr. hagnaði miðað við 0,7 milljón kr. hagnað á árinu 2012.
- Síðast en ekki síst þá hefur skuldahlutfall miðað við tekjur batnað milli ára og er komið niður fyrir 150% af skatttekjum þ.e. í 147,2%.
Helstu fjárfestingarhreyfingar eru samtals 41,0 milljónir kr. m.a. skólalóð 7,6 milljónir kr., stígar í Súgandisey 6,7 milljónir kr.og nýtt hlutafé í Jeratúni að upphæð 7,3 milljónir vega þyngst.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,48%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var 0,43% á íbúðarhúsnæði.
Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%. Ársreikningurinn í heild sinni verður birtur á heimasíðu Stykkishólmbæjar.
Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari, í síma 433-8100