Meginatriði á öðrum ársfjórðungi 2014
- Hagnaður jókst um 106% milli ára. Hagnaðurinn nam 17 milljónum Bandaríkjadala eða 13% af sölu, samanborið við 8 milljónir dala og 8% af sölu á öðrum ársfjórðungi 2013.
- Sala nam 133 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 106 milljónir dala á öðrum ársfjórðungi 2013. Söluvöxtur var 23%, þar af 3% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
- Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 30% samanborið við annan ársfjórðung 2013, þar af var innri vöxtur neikvæður um 1%, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
- Sala á stoðtækjum jókst um 15% samanborið við annan ársfjórðung 2013, þar af var innri vöxtur 8%, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
- Framlegð nam 85 milljónum Bandaríkjadala eða 64% af sölu, samanborið við 65 milljónir dala og 61% af sölu á öðrum ársfjórðungi 2013.
- EBITDA nam 29 milljónum Bandaríkjadala og EBITDA framlegð 22% af sölu, samanborið við 15 milljónir dala og 14% af sölu á öðrum ársfjórðungi 2013.
- Handbært fé frá rekstri nam 25 milljónum Bandaríkjadala eða 19% af sölu, samanborið við 11 milljónir dala og 11% af sölu á öðrum ársfjórðungi 2013.
Endurskoðuð áætlun fyrir árið 2014
Félagið hefur endurskoðað áætlun fyrir árið 2014 vegna mikils söluvaxtar í stoðtækjum, aukinnar skilvirkni í rekstri og kaupa á tveimur litlum fyrirtækjum á árinu. Endurskoðuð áætlun fyrir árið 2014 er eftirfarandi:
- Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 16-18% (var áður 14-16%)
- Innri söluvöxtur á bilinu 3-4%, mælt í staðbundinni mynt (var áður 2-4%)
- EBITDA framlegð sem hlutfall af sölu á bilinu 19-20% (var áður 17-19%)
- Fjárfestingar (CAPEX) á bilinu 2,5-3,5% af sölu (óbreytt)
- Virkt skatthlutfall um 26% (óbreytt)
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Árangur okkar á fyrri helmingi ársins er einkar ánægjulegur. Árið fór vel af stað og nú á öðrum ársfjórðungi skilum við methagnaði og áframhaldandi sterku sjóðstreymi. Söluvöxtur í EMEA er áfram góður og árangur þeirra félaga sem við höfum keypt undanfarið er í takti við okkar væntingar. Sala á stoðtækjum er mjög góð og þá sérstaklega sala á hátæknivörum sem staðfestir velgengni okkar á þeim vettvangi."
Símafundur og hádegisverðarfundur með markaðsaðilum föstudaginn 25. júlí 2014
Símafundur föstudaginn 25. júlí kl. 10:00
Símafundur verður haldinn með fjárfestum föstudaginn 25. júlí kl. 10:00 þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri, munu kynna niðurstöður ársfjórðungsins. Innhringinúmer á símafundinn er 800-8660.
Hádegisverðarfundur föstudaginn 25. júlí kl. 12:00
Félagið býður jafnframt markaðsaðilum á Íslandi til hádegisverðarfundar þann 25. júlí kl. 12:00 þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri munu kynna niðurstöður ársfjórðungsins. Hádegisverðarfundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Össurar hf. að Grjóthálsi 5, 4. hæð. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið mottaka@ossur.com.