Íslandssjóðir hf. hafa óskað eftir að hlutdeildarskírteini eftirfarandi sjóða í rekstri félagsins verði tekin úr viðskiptum á skipulegum verðbréfamarkaði Nasdaq Iceland:
- Ríkisskuldabréf – Sjóður 5
- Úrvalsvísitala – Sjóður 6
- Löng ríkisskuldabréf – Sjóður 7
- IS Hlutabréfasjóðurinn
- Sjóður 1 – Skuldabréf (sjóðurinn hefur verið í slitameðferð frá árinu 2010)
- Sjóður 11 – Fyrirtækjabréf (sjóðurinn hefur verið í slitameðferð frá árinu 2010)
Taka umræddra hlutdeildarskírteina úr viðskiptum mun ekki hafa nein áhrif á innlausn þeirra eða innlausnarvirði.
Tilkynnt verður um afstöðu Nasdaq Iceland til umsóknarinnar þegar hún liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins í síma 440-4593.