Ársreikningur Byggðastofnunar 2016
Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2016, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 31. mars 2017.
Hagnaður ársins nam 157,1 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 22,74% en var 21,56% í lok árs 2015.
Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.
Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2016
· Hagnaður ársins nam 157 milljónum króna.
· Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 22,74% en skal að lágmarki vera 8%
· Hreinar vaxtatekjur voru 454,8 milljónir króna eða 53,4% af vaxtatekjum, samanborið við 454,8 milljónir króna (54,3% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2015.
· Laun og annar rekstrarkostnaður nam 428,2 milljónum króna samanborið við 392,6 milljónir árið 2015.
· Eignir námu 14.140 milljónum króna og hafa lækkað um 276,6 milljónir frá árslokum 2015. Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.125 milljónir.
· Skuldir námu 11.233 milljónum króna og lækkuðu um 433,7 milljónir á árinu.
Um ársreikninginn
Hagnaður ársins nam 157,1 milljón króna. Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána og matsbreytingu hlutabréfa.
Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 22,74% í lok tímabilsins.
Horfur
Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfarm sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni.
Fjármálaeftirlitið hefur heimild, samkvæmt 1. og 2. mgr. 84. gr. d laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, til að kveða á um sveiflujöfnunarauka sem er 0-2,5% af áhættugrunni. Í 1. mgr. 84. gr. e, sömu laga er kveðið á um 2,5% verndunarauka. Samkvæmt bréfi frá Fjármálaeftirlitinu, dagsettu 1. nóvember 2016, er kveðið á um 1% verndunarauka frá dagsetningu bréfsins. Verndunaraukinn hækkar í 1,75% þann 1. janúar 2017 og við bætist 1% sveiflujöfnunarauki 1. mars 2017. Samkvæmt yfirliti frá Fjármálaeftirlitinu verður samanlögð krafa um eiginfjárauka 3,75% þann 1. janúar 2018.
Eins og að ofan greinir er eiginfjárstaða Byggðastofnunar sterk og því mun hún geta uppfyllt þessa eiginfjárkröfu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is
Lykiltölur úr ársreikningi og samanburður við fyrri ár
2016 | 2015 | 2014 | 2013 | 2012 | |
Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | |
Rekstrarreikningur | |||||
Vaxtatekjur | 805.887 | 837.787 | 813.793 | 998.367 | 1.239.328 |
Vaxtagjöld | 375.330 | 382.996 | 414.371 | 561.002 | 645.570 |
Hreinar vaxtatekjur | 430.558 | 454.791 | 399.422 | 437.365 | 593.757 |
Rekstrartekjur | 509.380 | 385.120 | 448.940 | 559.846 | 193.296 |
Hreinar rekstrartekjur | 939.937 | 839.911 | 848.362 | 997.211 | 787.054 |
Rekstrargjöld | 782.821 | 741.021 | 499.145 | 808.294 | 939.827 |
Hagnaður (-tap) ársins | 157.116 | 98.891 | 349.217 | 188.917 | -152.773 |
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbr. hlutafjár | |||||
Framl. í afskriftarr. útlána og matsbr. hlutaf | 83.184 | 61.012 | -117.243 | 50.960 | 444.940 |
Efnahagsreikningur | 30.12.2016 | 31.12.2015 | 31.12.2014 | 31.12.2013 | 31.12.2012 |
Eignir | |||||
Sjóður og kröfur á lánastofnanir | 2.757.542 | 3.081.232 | 2.062.688 | 2.421.208 | 2.213.327 |
Útlán | 10.125.127 | 10.307.529 | 10.821.632 | 11.570.492 | 13.421.549 |
Veltuhlutabréf | 683.414 | 372.768 | 388.993 | 809.599 | 763.001 |
Hlutir í hlutdeildarfélögum | 499.258 | 574.736 | 513.402 | ||
Aðrar eignir | 74.883 | 80.511 | 130.216 | 71.009 | 340.102 |
Eignir samtals | 14.140.223 | 14.416.775 | 13.916.931 | 14.872.307 | 16.737.980 |
Skuldir og eigið fé | |||||
Lántökur | 11.003.741 | 11.495.402 | 11.161.775 | 12.458.421 | 14.549.688 |
Aðrar skuldir | 228.820 | 170.826 | 103.500 | 111.448 | 74.769 |
Skuldir samtals | 11.232.561 | 11.666.228 | 11.265.275 | 12.569.868 | 14.624.458 |
Eigið fé | 2.907.663 | 2.750.547 | 2.651.656 | 2.302.439 | 2.113.522 |
Skuldir og eigið fé samtals | 14.140.223 | 14.416.775 | 13.916.931 | 14.872.307 | 16.737.980 |
Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings | 0 | 0 | 18.807 | 22.552 | 216.398 |
Sjóðstreymi | 2016 | 2015 | 2014 | 2013 | 2012 |
Handbært fé (-til) frá rekstri | 241.768 | 207.394 | 556.712 | 787.953 | 638.877 |
Fjárfestingarhreyfingar | -738.880 | 373.684 | 569.609 | 324.400 | 617.252 |
Fjármögnunarhreyfingar | 173.422 | 437.466 | -1.484.841 | -904.473 | -1.507.031 |
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé | -323.690 | 1.018.544 | -358.520 | 207.880 | -250.903 |
Handbært fé í ársbyrjun | 3.081.232 | 2.062.688 | 2.421.208 | 2.213.327 | 2.464.230 |
Handbært fé í árslok | 2.757.542 | 3.081.232 | 2.062.688 | 2.421.208 | 2.213.327 |
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði | 22,74% | 21,56% | 20,20% | 16,12% | 12,55% |