Leiðrétting:
Ársreikningur Stykkishólmsbæjar árið 2016 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, þ.e. A og B hluta, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Ársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsreglu og í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga nr. 3/2006, reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015. Ársreikningurinn byggir í meginatriðum á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður, en birtar eru viðbótarupplýsingar í skýringum í samræmi við ákvæði nýrra sveitarstjórnarlaga og auglýsingu ráðuneytisins.
Í dag 27. apríl 2017 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2016 tekinn til fyrri umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 15. maí n.k.
Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra. Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum.
Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2016 byggir á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. Geta skal þess að í ársreikningi þessum er Dvalarheimili aldraðra og þjónustuíbúðir aldraðra í fyrsta sinn í B-hluta Stykkishólmsbæjar.
Helstu lykiltölur: Sjá viðhengi
Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari, í síma 433-8100