Árshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2017 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 2. maí 2017.
- Tekjulækkun um 5% frá fyrsta ársfjórðungi 2016
- Kostnaðarverð seldra vara lækkaði um 3% miðað við sama tímabil 2016
- Rekstrarkostnaður lækkaði um 10% miðað við sama tímabil 2016
- EBITDA hagnaður nam 719 m.kr., sem er hækkun um 8% milli ára
- EBIT hagnaður nam 342 m.kr., sem er hækkun um 6% milli ára
- EBITDA hlutfall var 22,9% og EBIT hlutfall 10,9% á fjórðungnum
- Hagnaður tímabilsins nam 201 m.kr., sem er 2% hækkun frá fyrsta ársfjórðungi 2016
- Eiginfjárhlutfall nam 48,1%
- Handbært fé frá rekstri nam 190 m.kr.
Stefán Sigurðsson forstjóri:
"Uppgjör fyrsta fjórðungs skilar 8% aukningu í EBITDA rekstarhagnaði frá fyrra ári þar sem hagræðingaraðgerðir félagsins hafa meðal annars tilætluð áhrif. Af starfseminni á Íslandi er enn meiri viðsnúningur þar sem EBITDA vex um 14% á milli ára. Sjónvarpstekjur vaxa um 8% frá fyrsta ársfjórðungi 2016 í tengslum við sjónvarpsþjónustu félagsins á Íslandi en þrátt fyrir jákvæða þróun í heildarfjölda farsímaviðskiptavina lækka heildartekjur frá fyrra ári einkum vegna verðlækkana árið 2016. Tekjur farsíma á Íslandi eru farnar að sýna viðsnúning og gert er ráð fyrir að sú þróun geti orðið greinilegri í niðurstöðum annars ársfjórðungs. Sama á við internettekjur, þar sem lækkun á tekjum af interneti tengist aðallega heildsöluviðskiptavinum sem hættu í viðskiptum á fyrsta ársfjórðungi 2016.
Af lækkun tekna eiga Færeyjar helming lækkunar sem tengist verðsamkeppni á þeim markaði á árinu 2016. Unnið er að fjölþættum aðgerðum til að bæta stöðuna í Færeyjum og meðal annars eru kostnaðaraðgerðir byrjaðar að skila sér í mótvægi á fjórðungnum sem tengjast fækkun stöðugilda sem ráðist var í undir lok síðasta árs.
Í tengslum við kaup á 365 miðlum hf. hefur samrunatilkynningu verið skilað til Samkeppniseftirlitsins og búast má við svörum á seinni hluta ársins. Áætlarnir gera ráð fyrir að sameinað félag verði með um 62% hærri tekjur, 54% hærri EBITDA og 85% hærra frjálst fjárflæði en núverandi rekstur Fjarskipta.
Félagið mun flytja í framtíðarhöfuðstöðvar sínar í júní að Suðurlandsbraut 8 en hönnun hússins leggur grunn að framúrskarandi vinnuumhverfi. Unnið er eftir BESTA hugmyndafræði sem hefur velferð starfsfólks í fyrirrúmi á sama tíma og fyrirtækið nær fram hagræði í húsnæðismálum."