Í 36. viku 2017 keypti Síminn hf. 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 19.350.000 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 4.9.2017 | 09:48 | 5.000.000 | 3,87 | 19.350.000 | 173.724.729 |
| 5.000.000 | 19.350.000 |
Síminn átti 168.724.729 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 173.724.729 eigin hluti eða sem nemur 1,84% af útgefnum hlutum í félaginu.
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 15. maí 2017.
Síminn hefur keypt samtals 173.724.729 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,84% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 718.859.906 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.102 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2018, en þó aldrei lengur en til 16. mars 2018 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is