Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2017 eftir lokun markaðar þann 25. október næstkomandi.
Vakin er athygli á því að uppgjörið verður birt degi fyrr en áætlað var samkvæmt uppgjörsdagatali sem birt var fréttakerfi Kauphallar þann 30. desember 2016.
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 26. október 2017 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30.
Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/siminn/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/uppgjor og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni: https://livestream.com/accounts/11153656/events/7801093/player
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is