Aðalfundur Marel hf. 2018


 

Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, þriðjudaginn 6. mars nk., kl. 16:00.

Dagskrá:

  • Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins.
  • Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu.
  • Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
  • Önnur mál, löglega borin fram.

Fundarstörf munu fara fram á ensku.

Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 1. mars.

Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 24. febrúar.

Á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðal­fundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2017, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 7. febrúar 2018, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.

Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ.

Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30.

Stjórn Marel hf.

 

GlobeNewswire