Marel hf. birti árshlutareikning sinn fyrir þriðja ársfjórðung 2018 eftir lokun markaðar þann 31. október 2018.
Fjárfestakynning
Í dag, fimmtudaginn 1. nóvember 2018 kl. 8.30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson, forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri.
Meðfylgjandi er fjárfestakynningin sem farið verður yfir á fundinum. Kynningarfundurinn er haldinn í höfuðstöðvum félagsins, Austurhrauni 9 í Garðabæ.
Vefvarp
Fundinum verður einnig netvarpað á www.marel.com/webcast.
Nú verður í fyrsta sinn tekið við spurningum frá áhorfendum vefvarpsins. Til að senda inn spurningu þarf að smella á táknið efst í hægra horninu þegar vefvarpið hefst. Spurningum verður svarað í lok kynningarfundarins. Aðeins verða teknar spurningar frá þeim sem koma fram undir nafni. Því er mikilvægt að þátttakendur fylli út nafn, fyrirtæki og tölvupóstfang við innskráningu.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Tinna Molphy og Marinó Þór Jakobsson í gegnum netfangið investors@marel.com og í síma 563 8001.
Viðhengi