Reykjavík, föstudagur, 28. desember, 2018 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur reglulega út viðskiptayfirlit fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Dregin hafa verið saman helstu atriði yfir viðskipti á Nasdaq Iceland á liðnu ári, 2018.
Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskipta og skráninga hjá Nasdaq Iceland: „Vöxtur hlutabréfamarkaðar hélt áfram á árinu með þremur tímamótaskráningum. Kvika banki varð fyrsti bankinn til að vera skráður á markað eftir fjármálakreppuna, Heimavellir urðu fyrsta íbúðaleigufélagið til að fara á markað og Arion banki varð fyrsta félagið í yfir áratug til að verða samhliða skráð í tveimur kauphöllum Nasdaq á Norðulöndunum. Við horfum til frekari uppbyggingar á næsta ári. Skráningarhorfur eru góðar og smærri félög líta í auknum mæli til skráningar á First North markaðinn. Hugmyndir í Hvítbók um hvernig megi virkja verðbréfamarkaðinn í meira mæli lofa góðu og við verðum vör við aukinn áhuga erlendra fjárfesta í kjölfar ákvörðunnar FTSE vísitölufyrirtækisins að taka íslensk félög inn í vísitölur sínar á næsta ári. Umfang bæði hlutabréfa- og skuldabréfaviðskipta var minna í ár en á síðasta ári en við teljum þar um tímabundna þætti að ræða og þá sérstaklega auknar fjárfestingar lífeyrissjóða erlendis og innflæðishöft. Höftin halda mjög aftur af þátttöku erlendra aðila á íslenska markaðnum sem aftur stendur í vegi fyrir fjármögnun íslenskra fyrirtækja á skuldabréfamarkaði“.
Hlutabréf
- Heildarviðskipti með hlutabréf á árinu námu 506 milljörðum eða 2.042 milljónum á dag. Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf árið 2017 632 milljarðar, eða 2.529 milljónir á dag. Þetta er 19% veltuminnkun frá fyrra ári.
- Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 96,8 milljarðar, Icelandair Group (ICEAIR), 57,2 milljarðar, Reita fasteignafélags, 42,7 milljarðar, Festi, 37,4 milljarðar, og Haga (HAGA) 34,5 milljarðar. Á Aðalmarkaði hækkaði verð bréfa Haga mest eða um 30% á árinu og næst verð bréfa Marel um 15%. Á Nasdaq First North markaðnum hækkaði verð bréfa Iceland Seafood International mest eða um 34%.
- Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 1,3% á árinu og stendur nú í 1.614 stigum. Heildarvísitala hlutabréfa lækkaði um 5,6%.
- Markaðsvirði skráðra hlutabréfa var í árslok 960 milljarðar sem er 17% hærra en í lok síðasta árs. Í lok árs voru 23 félög skráð, þar af 5 á Nasdaq First North. Á árinu 2018 voru hlutabréf þriggja félaga tekin til viðskipta, Arion banki og Heimavellir á Aðalmarkað og Kvika banki á First North.
Verðbreytingar hlutabréfa á árinu 2018*:
Hækkanir | Lækkanir | ||||
% breyting | % breyting | ||||
Iceland Seafood International | 34,1% | ↑ | Sláturfélag suðurlands | -3,2% | ↓ |
Hagar | 30,3% | ↑ | HB Grandi | -3,7% | ↓ |
Marel | 14,6% | ↑ | Origo | -5,4% | ↓ |
Skeljungur | 9,2% | ↑ | Arion banki | -6,0% | ↓ |
Kvika banki | 8,2% | ↑ | Eimskipafélag Íslands | -9,0% | ↓ |
Festi | 1,3% | ↑ | Síminn | -9,3% | ↓ |
Hampiðjan | 0,0% | → | Klappir Grænar Lausnir | -10,3% | ↓ |
Vátryggingafélag Íslands | -13,2% | ↓ | |||
Reitir fasteignafélag | -14,7% | ↓ | |||
Sjóvá-Almennar tryggingar | -15,8% | ↓ | |||
Reginn | -17,7% | ↓ | |||
Eik fasteignafélag | -18,6% | ↓ | |||
Heimavellir | -18,7% | ↓ | |||
Tryggingamiðstöðin | -21,3% | ↓ | |||
Icelandair Group | -34,9% | ↓ | |||
Sýn | -38,3% | ↓ | |||
*Í tilfelli félaga sem skráð voru á árinu er um að ræða breytingu frá útboðsgengi ef útboð var haldið í aðdraganda skráningar en annrs breytingu frá dagslokaverði á skráningardegi.
Skuldabréf
- Heildarviðskipti með skuldabréf námu 1.066 milljörðum á árinu sem samsvarar 4,3 milljarða veltu á dag, samanborið við 5,0 milljarða veltu á dag árið 2017. Þetta er 13% minni velta en í fyrra. Alls námu viðskipti með ríkisbréf 808 milljörðum, viðskipti með bankabréf 161 milljarði og viðskipti með íbúðabréf 42 milljörðum.
- Á árinu hækkuðu allar skuldabréfavísitölur Kauphallarinnar. Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 6,6% og stendur í 1.454 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 2,7% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 8,3%.
Gleðilegt nýtt ár – þökkum fyrir góð samskipti á liðnu ári
#
Um Nasdaq
Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 4,000 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 15 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.
Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.
FJÖLMIÐLASAMSKIPTI
Kristín Jóhannsdóttir
868 9836
kristin.johannsdottir@nasdaq.com