Origo hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun: Endurkaupum lokið


Reykjavík,4. október 2019

Origo hf. (ORIGO) keypti í  vikunni alls 725.000 eigin hluti fyrir kr. 16.468.375 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Origo eftir viðskipti
30.9.201909:35145.00022,60  3.277.000    12.478.069 
1.10.201913:34145.00022,78  3.302.375    12.623.069 
2.10.201909:40145.00022,70  3.291.500    12.768.069 
3.10.201911:59145.00022,75  3.298.750    12.913.069 
4.10.201909:41145.00022,75  3.298.750    13.058.069 
Samtals 725.000   16.468.375   

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt  var af stjórn félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar 14. mars sl.

Origo hefur nú keypt samtals 11.408.100 hluti, sem samsvarar 99,29 % af þeim eigin hlutum sem að hámarki yrðu keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 268.616.943. Origo á nú samtals 2,84% af heildarhlutafé félagsins sem er 459.600.000 en fyrir átti félagið 12.333.069 hluti.

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni skyldu að hámarki keyptir 11.490.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna yrði aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gilti til 31. desember 2019. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.