Reykjavík, 23. október 2019
Origo hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna uppgjörs 3. ársfjórðungs félagsins föstudaginn 1. nóvember næstkomandi.
Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna rekstur og afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningin fer fram í ráðstefnusal Origo á 1. hæð, að Borgartúni 37 og hefst klukkan 08:30.
Hægt verður að fylgjast með netstreymi af fundinum, sem má nálgast hér : https://www.origo.is/fjarfestakynning/
Nánari upplýsingar:
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is