Origo hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun: Endurkaupum lokið.


Reykjavík, 7. janúar 2020


Origo hf. (ORIGO) keypti í vikunni alls 597.742 eigin hluti fyrir kr. 15.535.642 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Origo eftir viðskipti
6.1.202010:36325.00026,158.498.750  24.460.198 
7.1.202012:58272.00025,807.017.600  24.732.198 
7.1.202014:2074226,0019.292  24.732.940 
Samtals 597.742 15.535.642 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt  var af stjórn félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar 31.október sl.

Origo hefur nú keypt samtals 11.380.122 hluti, sem samsvarar 99,04% af þeim eigin hlutum sem að hámarki yrðu keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr.299.999.993. Origo á nú samtals 5,38% af heildarhlutafé félagsins sem er 459.600.000 en fyrir átti félagið 13.173.818 hluti.

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni skyldu að hámarki keyptir 11.490.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna yrði aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gilti til 10. febrúar 2020. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf voru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.