Ársreikningur Byggðastofnunar 2018
Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2018, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 22. mars 2019
Hagnaður ársins nam 113,4 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,45%.
Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.
Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2018
- Hagnaður ársins nam 113,4 milljónum króna.
- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,45% en skal að lágmarki vera 8% auk 1,25% sveiflujöfnunarauka og 1,75% verndunarauka, eða samtals 11,0% til 31. desember. Þann 1. janúar 2019 hækkaði verndunarauki í 2,5% þannig að samanlögð krafa um eiginfjárauka er 11,75% frá 1. janúar 2019.
- Hreinar vaxtatekjur voru 467,8 milljónir króna eða 42,6% af vaxtatekjum, samanborið við 426,3 milljónir króna (49,9% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2017.
- Laun og annar rekstrarkostnaður nam 520,1 milljónum króna samanborið við 446,3 milljónir árið 2017.
- Eignir námu 14.886 milljónum króna og hafa hækkað um 1.753 milljónir frá árslokum 2017. Þar af voru útlán og fullnustueignir 12.461 milljónir samanborið við 10.804 milljónir í árslok 2017.
- Skuldir námu 11.766 milljónum króna og hækkuðu um 1.640 milljónir á árinu.
Horfur
Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðinni.
Fjármálaeftirlitið hefur heimild, samkvæmt 1. og 2. mgr. 86. gr. d laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, til að kveða á um sveiflujöfnunarauka sem er 0-2,5% af áhættugrunni. Í 1. mgr. 86. gr. e, sömu laga er kveðið á um 2,5% verndunarauka. Samkvæmt bréfi frá Fjármálaeftirlitinu verður samanlögð krafa um eiginfjárauka 4,25% þann 15. maí 2019 og 4,50% þann 1. febrúar 2020.
Eins og að ofan greinir er eiginfjárstaða Byggðastofnunar sterk og því mun hún geta uppfyllt þessa eiginfjárkröfu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is
Lykiltölur úr ársreikningi og samanburður við fyrri ár
2018 | 2017 | 2016 | 2015 | 2014 | |
Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | Þús. kr. | |
Rekstrarreikningur | |||||
Vaxtatekjur................................................ | 1.098.491 | 855.106 | 805.887 | 837.787 | 813.793 |
Vaxtagjöld.................................................. | 630.646 | 428.828 | 375.330 | 382.996 | 414.371 |
Hreinar vaxtatekjur..................................... | 467.845 | 426.278 | 430.558 | 454.791 | 399.422 |
Rekstrartekjur............................................ | 616.573 | 549.588 | 509.380 | 385.120 | 448.940 |
Hreinar rekstrartekjur................................. | 1.084.418 | 975.866 | 939.937 | 839.911 | 848.362 |
Rekstrargjöld.............................................. | 971.031 | 876.235 | 782.821 | 741.021 | 499.145 |
Hagnaður (-tap) ársins............................ | 113.387 | 99.631 | 157.116 | 98.891 | 349.217 |
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbr. hlutafjár | |||||
Framl. í afskriftarr. útlána og matsbr. hlutafj.. | 114.851 | 111.179 | 83.184 | 61.012 | -117.243 |
Efnahagsreikningur | 31.12.2018 | 31.12.2017 | 31.12.2016 | 31.12.2015 | 31.12.2014 |
Eignir | |||||
Bankainnistæður......................................... | 1.102.471 | 1.089.861 | 2.757.542 | 3.081.232 | 2.062.688 |
Útlán til viðskiptavina................................... | 12.113.274 | 10.463.653 | 9.679.575 | 9.638.018 | 9.773.122 |
Fullnustueignir............................................. | 347.510 | 340.510 | 445.552 | 669.510 | 1.048.510 |
Veltuhlutabréf............................................. | 571.706 | 594.926 | 683.414 | 372.768 | 388.993 |
Hlutdeildarfélög........................................... | 642.237 | 576.288 | 499.258 | 574.736 | 513.402 |
Skuldunautar.............................................. | 29.713 | 14.147 | 18.689 | 25.127 | 68.969 |
Varanlegir rekstrarfjármunir......................... | 79.403 | 53.858 | 56.194 | 55.384 | 61.247 |
Eignir samtals.......................................... | 14.886.313 | 13.133.244 | 14.140.223 | 14.416.775 | 13.916.931 |
Skuldir og eigið fé | |||||
Lántökur og skuldabréfaútgáfur.................... | 11.504.095 | 9.920.045 | 11.003.741 | 11.495.402 | 11.161.775 |
Óráðstöfuð framlög..................................... | 123.593 | 130.852 | 141.783 | 120.629 | 41.349 |
Afskriftarreikningur v. veittra ábyrgða........... | 0 | 0 | 0 | 0 | 990 |
Aðrar skuldir............................................... | 137.944 | 75.053 | 87.037 | 50.197 | 61.161 |
Skuldir samtals........................................ | 11.765.633 | 10.125.951 | 11.232.561 | 11.666.228 | 11.265.275 |
Eigið fé....................................................... | 3.120.680 | 3.007.293 | 2.907.663 | 2.750.547 | 2.651.656 |
Skuldir og eigið fé samtals...................... | 14.886.313 | 13.133.244 | 14.140.223 | 14.416.775 | 13.916.931 |
Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings........ | 0 | 0 | 0 | 0 | 18.807 |
Sjóðstreymi | 2018 | 2017 | 2016 | 2015 | 2014 |
Handbært fé (-til) frá rekstri......................... | 248.164 | 290.075 | 241.768 | 207.394 | 556.712 |
Fjárfestingarhreyfingar................................ | -1.327.614 | -765.620 | -738.880 | 373.684 | 569.609 |
Fjármögnunarhreyfingar.............................. | 1.092.060 | -1.192.136 | 173.422 | 437.466 | -1.484.841 |
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé............... | 12.610 | -1.667.681 | -323.690 | 1.018.544 | -358.520 |
Handbært fé í ársbyrjun............................... | 1.089.861 | 2.757.542 | 3.081.232 | 2.062.688 | 2.421.208 |
Handbært fé í árslok................................ | 1.102.471 | 1.089.861 | 2.757.542 | 3.081.232 | 2.062.688 |
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki | 21,45% | 23,57% | 22,74% | 21,56% | 20,20% |
Viðhengi