Marel: Úthlutun kauprétta


Stjórn Marel hf. ákvað þann 5. febrúar 2021 að veita starfsmönnum kauprétti að allt að 4.831.000 hlutum í félaginu, þar af 1.505.000 til framkvæmdastjórnar. Kaupréttirnir verða veittir meðlimum framkvæmdastjórnar og tilteknum starfsmönnum félagsins í lykilstöðum.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Skilmálar eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 6. mars 2019 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel hf. þann 18. mars 2020.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á grunnverðinu EUR 5,70 á hlut.* Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða ákveðnar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Ávinnslutími (e. vesting time) er þrjú ár frá úthlutun. Heimilt verður að nýta áunna kauprétti fjórum sinnum á ári eftir birtingu ársfjórðungsuppgjöra. Fyrsta nýtingartímabil mun hefjast eftir birtingu ársuppgjörs fyrir árið 2023, á fyrsta ársfjórðungi 2024. Kaupréttarhafar geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til fyrsta ársfjórðungs ársins 2025, þegar samningar renna út og falla þá ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Meðlimum framkvæmdastjórnar Marel ber að halda eftir hlutum sem nema fjárhæð hreins hagnaðar af kaupréttunum, þegar skattar hafa verið dregnir frá, þar til eftirfarandi fjárhæðarviðmiðum er náð, mælt í virði hlutafjáreignar í félaginu sem margfeldi af grunnárslaunum: forstjóri þrisvar sinnum árslaun; aðrir meðlimir framkvæmdastjórnar Marel tvisvar sinnum árslaun.
  • Aðrir kaupréttarhafar þurfa ekki að halda eftir hlutum.
  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga þess) á nýtingardegi.

Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Marel hf. hefur veitt starfsmönnum sínum nemur nú 23,1 milljónum hluta, eða um 3,0% hlutafjár í félaginu, og er þá meðtalin þessi nýja úthlutun kauprétta. Heildarkostnaður félagsins vegna nýju samninganna á næstu þremur árum er áætlaður um 4,38 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn Marel:

NafnStaðaNýr kauprétturÁður úthlutaður, ónýttur kauprétturHlutafjáreign innherjaHlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila
Árni Oddur ÞórðarsonForstjóri400.000 1.952.000 72.643**67.235
      
Linda JónsdóttirFjármálastjóri215.000 1.350.000 339.817 0
      
Árni SigurðssonFramkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga215.000 1.640.000 117.317 100.000
      
Roger ClaessensFramkvæmdastjóri kjúklingaiðnaðar150.000 450.000 0
      
David WilsonFramkvæmdastjóri kjötiðnaðar105.000 1.157.000 195.857 0
      
Guðbjörg Heiða GuðmundsdóttirFramkvæmdastjóri fiskiðnaðar105.000 240.000 0
      
Folkert BölgerFramkvæmdastjóri framleiðslu- og aðfangastýringar105.000 700.000 17.862 0
      
Ulrika LindbergFramkvæmdastjóri alþjóðamarkaða og þjónustu105.000 450.000 0
      
Anna Kristín PálsdóttirFramkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar105.000 267.000 0

 



Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á Euronext Amsterdam þann 5. febrúar 2021, þ.e. EUR 5,70 á hlut.

** Fruminnherji á jafnframt 17,9% hlut í Eyri Invest hf. sem er stærsti hluthafi Marel hf.