Marel mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:
Fjárhagsdagatal 2022
1F 2022 | 27. apríl 2022 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 28. apríl 2022 | |||
2F 2022 | 27. júlí 2022 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 28. júlí 2022 | |||
3F 2022 | 2. nóvember 2022 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 3. nóvember 2022 | |||
4F 2022 | 8. febrúar 2023 | Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 9. febrúar 2023 | |||
AGM | 22. mars 2023 | Aðalfundur Marel |
Áður birt dagatal fyrir fjárhagsárið fyrir 2021 er óbreytt:
4F 2021 | 2. febrúar 2022 | Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 3. febrúar 2022 | |
AGM | 16. mars 2022 | Aðalfundur Marel |
Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Fjárfestafundir og vefvarp
Fjárfestum og öðrum markaðsaðilum er boðið á fjárfestafundi sem haldnir eru ársfjórðungslega. Fundirnir fara fram á ensku. Fundinum er vefvarpað beint á marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn. Markaðsaðilum gefst einnig tækifæri til að hringja inn á fundina.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljörðum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.