Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. hefur boðað til aðalfundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, fimmtudaginn 16. mars kl. 16:00, en auk þess verður boðið upp á rafræna þátttöku.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja aðalfundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni:
Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 15. mars, eða degi fyrir aðalfund. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Endanleg dagskrá fundarins er í viðhengi. Öll gögn vegna aðalfundar, s.s. ályktunartillögur stjórnar til aðalfundar, enskar þýðingar fundargagna, starfskjaraskýrsla ársins 2022 og ársskýrsla félagsins hafa verið gerð aðgengileg á vefsíðu félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, í s. 660 5260 eða með tölvupósti fjarfestatengsl@vis.is
Attachment