Í viku 40 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.164.325 eigin hluti að kaupverði 37.581.265 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
4.10.2023 | 09:56:58 | 450.000 | 32,40 | 14.580.000 |
5.10.2023 | 11:25:10 | 18.116 | 32,20 | 583.335 |
5.10.2023 | 11:25:11 | 18.116 | 32,20 | 583.335 |
5.10.2023 | 11:25:11 | 18.116 | 32,20 | 583.335 |
5.10.2023 | 14:08:10 | 9.977 | 32,20 | 321.259 |
5.10.2023 | 14:26:02 | 200.000 | 32,20 | 6.440.000 |
6.10.2023 | 09:57:48 | 450.000 | 32,20 | 14.490.000 |
Samtals | 1.164.325 | 37.581.265 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 29.08.2023.
Sjóvá átti 18.323.456 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 19.487.781 eigin hluti eða sem nemur 1,65% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 5.037.517 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,43% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 166.487.579 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.352.941 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is