Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2023


Kynningarfundur 8. nóvember 2023

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 7. Nóvember 2023.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 8. nóvember nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com.

Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.

Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com