Eimskip: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 Í 44. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 76.939.500 eins og hér segir:

DagsetningTími viðskiptaKeyptir hlutir Gengi á hlutKaupverð
30.10.202309:4333.000477,0015.741.000
31.10.202311:3133.000471,5015.559.500
1.11.202309:3533.000470,0015.510.000
2.11.202315:0433.000463,0015.279.000
3.11.202310:1033.000450,0014.850.000
 Samtals165.000 76.939.500

Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.

Eimskip átti 2.154.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 2.319.320 hluti sem nemur 1,38% af heildarhlutafé félagsins.

Eimskip hefur nú keypt samtals 594.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 27,63% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er kr. 280.797.000  sem nemur 28,08% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq  Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com