Alvotech tekur þátt í heilbrigðisráðstefnu Jefferies í London

Iceland, Germany, India, U.S.


Alvotech (NASDAQ: ALVO) tekur þátt í heilbrigðisráðstefnu fjárfestingabankans Jefferies, sem haldin verður í London dagana 14.- 16. nóvember n.k. Stjórnendur Alvotech munu þar kynna starfsemi félagsins og funda með fjárfestum.

Alvotech flytur kynningu á ráðstefnunni 15. nóvember n.k., kl. 13:00. Hægt verður að hlýða á hana í beinu streymi og að ráðstefnunni lokinni verður upptaka af kynningunni aðgengileg á vefsíðu félagsins í 90 daga. Allar upplýsingar um hvernig tengjast má streyminu eða hlýða á upptökuna eru aðgengilegar á fjárfestasíðu Alvotech undir liðnum News and Events – Events and Presentations.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

TENGILIÐUR
Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson
alvotech.ir@alvotech.com