Í 48. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 74.200.500 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð |
27.11.2023 | 10:38 | 33.000 | 457,50 | 15.097.500 |
28.12.2023 | 14:16 | 33.000 | 447,50 | 14.767.500 |
29.11.2023 | 12:02 | 33.000 | 444,00 | 14.652.000 |
30.11.2023 | 09:47 | 33.000 | 450,00 | 14.850.000 |
1.12.2023 | 10:37 | 33.000 | 449,50 | 14.833.500 |
Samtals | 165.000 | 74.200.500 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.
Eimskip átti 2.814.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 2.979.320 hluti sem nemur 1,77% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur nú keypt samtals 1.254.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 58,33% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 577.549.500 sem nemur 57,75% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com