Í 50. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 73.722.000 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð |
11.12.2023 | 15.33 | 33.000 | 445,00 | 14.685.000 |
12.12.2023 | 10:00 | 33.000 | 439,00 | 14.487.000 |
13.12.2023 | 09:36 | 33.000 | 442,50 | 14.602.500 |
14.12.2023 | 10:07 | 33.000 | 455,00 | 15.015.000 |
15.12.2023 | 10:39 | 33.000 | 452,50 | 14.932.500 |
Samtals | 165.000 | 73.722.000 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.
Eimskip átti 3.111.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.276.320 hluti sem nemur 1,95% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur nú keypt samtals 1.551.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 72,14% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 710.638.500 sem nemur 71,06% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com