Helstu niðurstöður eru:
- Rekstrartekjur námu 11.224 m.kr.
- Leigutekjur námu 9.514 m.kr. og jukust um rúm 11% milli ára
- Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, söluhagnað fjárfestingareigna og afskriftir nam 7.475 m.kr. og jókst um 13% milli ára
- Matsbreyting fjárfestingareigna nam 7.513 m.kr.
- Endurmat eigna til eigin nota nam 1.784 m.kr.
- Handbært fé frá rekstri nam 4.083 m.kr.
- Bókfært virði fjárfestingareigna nam 132.106 m.kr.
- Vaxtaberandi skuldir námu 75.566 m.kr.
- Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,12%
- Vegnir óverðtryggðir vextir námu 9,63%
- Hlutfall óverðtryggðra lána nam tæplega 19% við árslok
- Eiginfjárhlutfall nam 34,6% í lok árs
- Veðhlutfall (vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna án byggingarheimildina) nam 57,7%
- Virðisútleiguhlutfall án þróunareigna nam 94,3% í lok árs
Nánari upplýsingar má finna í meðfylgjandi stjórnendauppgjöri. Þá verða ítarlegar upplýsingar birtar í ársskýrslu félagsins þann 15. febrúar nk.
Viðhengi