Vátryggingafélag Íslands hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu fyrir árið 2023. Í skýrslunni eru ítarlegar upplýsingar um starfsemi félagsins, gjaldþol og fjárhagslega stöðu. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.
Í skýrslunni eru veittar upplýsingar sem er ætlað að auka skilning á starfsemi félagsins. Fjallað er um stjórnkerfi VÍS, rekstur og afkomu af vátryggingastarfsemi og fjármálastarfsemi, skipulag og framkvæmd áhættustýringar, innri stjórnun og eftirlitskerfi, áhættusnið og aðferðir við mat á gjaldþolsstöðu og eiginfjárstýringu.
Skýrsluna má finna á vefslóðinni: https://vis.is/skyrsla-um-gjaldthol-og-fjarhagsstodu/