Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) hefur í dag lokið stækkun á skuldabréfaflokknum HEIMAR50 GB.
HEIMAR50 GB er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.
Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,67% og verður heildarstærð flokksins því í kjölfar stækkunar að nafnverði 14.420 m.kr.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskiptanna er 26. september 2024 og verður í kjölfarið óskað eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq. Tilgangur útgáfunnar er að fjármagna fjárfestingaverkefni félagsins næstu mánuði.
ACRO verðbréf hf. hafði umsjón með viðskiptunum og stækkun skuldabréfaflokksins.
Í kjölfar útgáfunnar mun græn fjármögnun Heima nema um 43% af heildarfjármögnun félagsins.
Grænu umgjörðina ásamt vottun CICERO má nálgast á vefsíðu Heima á slóðinni https://www.heimar.is/fjarfestar/fjarmoegnun/graen-fjarmoegnun/.
Nánari upplýsingar veitir:
Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is