Í viku 38 keypti Heimar hf. („Heimar“) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 90.345.760 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
18.09.2024 | 10:54 | 1.000.000 | 30,2 | 30.181.880 |
19.09.2024 | 15:22 | 1.000.000 | 30 | 29.982.000 |
20.09.2024 | 09:41 | 1.000.000 | 30,2 | 30.181.880 |
Samtals | 3.000.000 | 90.345.760 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 16. september 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025.
Heimar áttu enga eigin hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 3.000.000 hluti, eða um 0,17% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 90.345.760 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is