Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.
Þrettán tilboð að fjárhæð 4.040 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,81%-3,88%. Tilboðum að fjárhæð 3.740 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,84%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 42.900 m. kr.
Tíu tilboð að fjárhæð 1.680 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,42%-7,48%. Tilboðum að fjárhæð 1.120 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7.46%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 14.100 m. kr.
Uppgjörsdagur er 13. nóvember 2024.
Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.