Hátt fjárfestingarstig í Mosfellsbæ


Áætlaður rekstrarafgangur er 716 milljónir króna árið 2025.

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 endurspeglar hátt fjárfestingarstig og forgangsröðun í þágu barna og unglinga. Fyrri umræða bæjarstjórnar um áætlunina fór fram í dag, miðvikudaginn 6. nóvember.

  • Heildartekjur eru áætlaðar 22.995 m.kr. og þar af eru áætlaðar útsvarstekjur 12.179 m.kr.
  • Tekjur af byggingarrétti eru áætlaðar 514 m.kr.
  • Áætlað er að framkvæma í A-hluta fyrir 4.039 m.kr. og fyrir 1.340 m.kr. í B-hluta. Tekjur af gatnagerð eru 1.295 m.kr. og samtals er því kostnaður vegna framkvæmda A- og B-hluta 4.084 m.kr.
  • Afgangur verður af rekstri A- og B-hluta, 716 m.kr., þrátt fyrir hátt fjárfestingarstig.
  • Veltufé frá rekstri verður jákvætt um 1.982 m.kr., þ.e. um 9% af heildartekjum.
  • Álagningarhlutfall fasteignaskatts A hækkar úr 0,19% í 0,20%. Aðrar álagningarprósentur fasteignaskatts verða óbreyttar.
  • Gert er ráð fyrir að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt, þ.e. 14,97%, í samræmi við lögbundna heimild sveitarfélaga.
  • Hækkun á gjaldskrám sem varða börn verða 3,5% en aðrar gjaldskrár hækka almennt um 3,9%.
  • Áætluð íbúafjölgun er 2% og gert er þá ráð fyrir að íbúar verði 13.789 í byrjun árs 2025.

Hátt fjárfestingarstig og áhersla á börn og unglinga

Fjárfestingar ársins 2025 endurspegla þá miklu uppbyggingu sem er í bæjarfélaginu, auk þess sem áhersla er á viðhald eigna, sérstaklega í skólum og íþróttamannvirkjum.

Fjárfestingar í stofnunum bæjarins eru áætlaðar um 3 milljarðar króna. Fjárfestingar í gatnagerð og veitnakerfi eru áætlaðar um 2 milljarðar króna.

Nýr leikskóli verður tekinn í notkun í Helgafellshverfi á árinu og er hann ein stærsta einstaka fjárfestingin árið 2025, eða um 830 m.kr.

Uppbygging Varmársvæðis vegna endurnýjunar á aðalvelli, framkvæmdir við nýja frjálsíþróttabraut og hönnun á nýrri þjónustu og aðkomubyggingu og stúku nemur um 800 milljónum króna.

Þá verður nýtt íþróttahús tekið í notkun við Helgafellsskóla og nýtt húsnæði verður keypt fyrir skammtímavistun fyrir fötluð börn.

Þá er lögð mikil áhersla á viðhald eigna í íþróttamannvirkjum og skólabyggingum, auk endurnýjunar á skólalóðum.

Stærstu verkefnin í veitum og gatnagerð tengjast nýju atvinnusvæði, Korputúni, en auk þess er mikil áhersla lögð á endurnýjun lagna og gatnakerfis í eldri hverfum.

Lægstu leikskólagjöldin á höfuðborgarsvæðinu eru í Mosfellsbæ og er gert ráð fyrir að gjaldskrár sem varða þjónustu við börn hækki einungis um 3,5%, þ.e. í samræmi við markmið kjarasamninganna 2024.

Þá var jafnframt lögð fram í bæjarstjórn aðgerðaráætlun í málefnum barna og ungmenna í samræmi við bókun bæjarstjórnar fyrr í haust vegna fjölgunar barnaverndartilkynninga.

Viðhengi



Pièces jointes

Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2025-2028 til fyrri umræðu í bæjarstjórn