Fjárfestadagur Kviku banka hf. verður haldinn í dag, fimmtudaginn 7. nóvember, kl. 12.00 til 16.00 í Norðurljósasal Hörpu. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi á vef Kviku.
Á fjárfestadeginum munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og stjórnendur kynna stefnu og áherslur bankans í kjölfar væntrar sölu á TM tryggingum hf. („TM“). Farið verður yfir helstu atriði uppgjörs fyrir þriðja ársfjórðung 2024 auk þess sem aðalhagfræðingur bankans mun fjalla um þróun og efnahagshorfur á Íslandi og í Bretlandi.
Á fjárfestadeginum og í kynningu verður meðal annars farið yfir:
- Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2024
- Þróun og efnahagshorfur á Íslandi og í Bretlandi
- Stefna og áherslur Kviku í kjölfar væntrar sölu á TM
- Fjármögnun og áætluð eiginfjárstaða
- Áætlaðar arðgreiðslur í kjölfar sölu
- Fjárhagsleg markmið og möguleg þróun
Á vef Kviku má nálgast kynningarefni fjárfestadagsins, dagskrá og beint streymi:
https://kvika.is/fjarfestadagur2024/
Hægt verður að senda inn spurningar á meðan á fundi stendur.
Fundurinn fer fram á íslensku og ensku en kynningarefni er á ensku.
Upptaka með enskum texta verður síðar gerð aðgengileg á vef Kviku.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is
Viðhengi