Landsbankinn hf.: S&P breytir horfum lánshæfismats úr stöðugum í jákvæðar


Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings staðfesti í dag lánshæfismat Landsbankans og tilkynnti jafnframt um breytingu á horfum úr stöðugum í jákvæðar. Lánshæfismat bankans er því BBB+/A-2 með jákvæðum horfum.

Í tilkynningu S&P er vísað til þess að jákvæðar horfur endurspegli mögulega hækkun lánshæfismats vegna aukins viðnámsþróttar (e. loss-absorbing capacity) auki bankinn útgáfu skulda sem hafa aukna getu til að taka á sig tap og slíkar skuldir nái lágmarksviðmiði S&P sem nemur 4% af áhættuvegnum eignum samkvæmt aðferðafræði S&P.

Í rökstuðningi sínum bendir S&P á að Landsbankinn var fyrstur íslenskra banka til að gefa út víkjandi forgangsskuldabréf (e. senior non-preferred bond) og hafi þar með sýnt fram á traust markaðsaðgengi og áhuga fjárfesta á slíkri útgáfu.

Nánari upplýsingar eru í tilkynningu S&P sem aðgengileg er á vef bankans: https://www.landsbankinn.is/bankinn/fjarfestatengsl/lanshaefismat