Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 16. október sl. er nú lokið.
Í viku 47 keypti Heimar hf. („Heimar“ eða "félagið") 133.333 eigin hluti að kaupverði 4.599.989 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
20.11.2024 | 12:38 | 133.333 | 34,5 | 4.599.989 |
Samtals | 133.333 | 4.599.989 | ||
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 16. október 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið.
Heimar átti 31.312.500 fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 31.445.833 hluti, eða um 1,74% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 999.999.989 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is