Heimar hf.: Framboð til stjórnar


Tilnefningarnefnd Heima hf. („Heimar“ eða „félagið“) auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Heima fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður þriðjudaginn 11. mars 2025. 

Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum til nefndarinnar er til fimmtudagsins 5. desember 2024 og skal senda þær á tilnefningarnefnd@heimar.is. Tilnefningar nefndarinnar um stjórn félagsins verða birtar samhliða birtingu fundarboðs aðalfundar, sem samkvæmt samþykktum félagsins er boðað til með skemmst þriggja vikna fyrirvara.

Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.heimar.is

Tilnefningarnefnd Heima hf.