Í viku 47 keypti Heimar hf. („Heimar“) 2.000.000 eigin hluti að kaupverði 69.100.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
21.11.2024 | 13:21 | 1.000.000 | 34,6 | 34.600.000 |
22.11.2024 | 13:33 | 1.000.000 | 34,5 | 34.500.000 |
Samtals | 2.000.000 | 69.100.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 20. nóvember 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025.
Heimar átti 31.445.833 fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 33.445.833 hluti, eða um 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.069.099.989 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is