Breytingar á framkvæmdastjórn Eimskips


Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip. Innanlandssviði tilheyra innanlandsflutningar, vörudreifing, starfsemi vöruhúsa og frystigeymslna ásamt fasteignaumsjón. Þá heyrir dótturfyrirtækið Sæferðir einnig undir sviðið. Á sviðinu starfa um 400 starfsmenn á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið. 

Edda hóf störf sem markaðs- og samskiptastjóri Eimskips árið 2019 en hefur verið framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs félagsins frá árinu 2020. Þar áður starfaði hún hjá Íslandsbanka í 12 ár í ýmsum hlutverkum, síðast sem forstöðumaður sölu- og viðskiptastýringar á Fyrirtækja- og fjárfestasviði bankans. Edda er með B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er varaformaður Samtaka verslunar og þjónustu ásamt því að sitja í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins.

Harpa Hödd Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í stað Eddu. Harpa hefur starfað hjá Eimskip frá árinu 2019 í nokkrum hlutverkum á Mannauðs- og samskiptasviði, síðast sem forstöðumaður fræðslu og þróunar. Áður en Harpa hóf störf hjá Eimskip starfaði hún við mannauðsmál hjá Lyfju hf. Harpa er með B.Sc. í sálfræði og M.Sc. í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Mannauðs- og samskiptasviði tilheyra mannauðs-, markaðs- og samskiptamál. Sjálfbærnimál sem áður tilheyrðu sviðinu flytjast á Fjármálasvið.

Samhliða þessum breytingum lætur Jónína Magnúsdóttir sem verið hefur framkvæmdastjóri Innanlandssviðs af störfum og eru henni færðar þakkir fyrir starf sitt fyrir félagið. 

Breytingarnar taka nú þegar gildi.

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri:

„Edda Rut hefur verið í framkvæmdastjórn Eimskips frá árinu 2020 og þekkir starfsemi og viðskiptavini félagsins vel. Hún hefur borið ábyrgð á viðamiklum málaflokkum þvert á fyrirtækið og mun sú reynsla og þekking koma að góðum notum í nýju starfi meðal annars þegar kemur að ræktun viðskiptasambanda. Framundan eru spennandi en jafnframt krefjandi verkefni á Innanlandssviði. Væntingar og þarfir viðskiptavina eru í stöðugri þróun og okkar markmið er að veita ávallt framúrskarandi þjónustu og vaxa með viðskiptavinum okkar um allt land. 

Á sama tíma er ánægjulegt að sjá Hörpu stíga upp og taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Hluti af vegferð okkar á síðustu árum hefur verið að styrkja menningu og þróa mannauð félagsins og hefur Harpa verið í lykilhlutverki á þeirri vegferð. Harpa hefur unnið með stjórnendum og starfsfólki þvert á félagið, ekki síst í verkefnum tengdum starfsstöðvum erlendis, og meðal annars leitt leiðtogaþróun félagsins.

Á sama tíma og ég þakka Jónínu fyrir hennar störf og óska henni velfarnaðar, hlakka ég til að vinna með Eddu og Hörpu í nýjum hlutverkum.“

Viðhengi


EIM - Edda_Rut_Bjornsdottir EIM_Harpa_Hodd_Sigurdardottir