Hátt fjárfestingarstig í Mosfellsbæ



Áætlaður rekstrarafgangur er 702 milljónir króna árið 2025. 



Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 endurspeglar hátt fjárfestingarstig og forgangsröðun í þágu barna og unglinga.

Seinni umræða umræða bæjarstjórnar um áætlunina fór fram í dag, miðvikudaginn 4.desember 2024. 



  • Heildartekjur eru áætlaðar 22.938 m.kr. og þar af eru áætlaðar útsvarstekjur 12.179 m.kr. 
  • Tekjur af byggingarrétti eru áætlaðar 514 m.kr. 
  • Áætlað er að framkvæma í A-hluta fyrir 4.039 m.kr. og fyrir 1.340 m.kr. í B-hluta. Tekjur af gatnagerð eru 1.295 m.kr. og samtals er því kostnaður vegna framkvæmda A- og B-hluta 4.084 m.kr. 
  • Afgangur verður af rekstri A- og B-hluta, 702 m.kr., þrátt fyrir hátt fjárfestingarstig. 
  • Veltufé frá rekstri verður jákvætt um 1.968 m.kr., eða tæplega 9% af heildartekjum. 
  • Álagningarhlutfall fasteignaskatts A hækkar úr 0,19% í 0,20%. Aðrar álagningarprósentur fasteignaskatts verða óbreyttar. 
  • Gert er ráð fyrir að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt, þ.e. 14,97%, í samræmi við lögbundna heimild sveitarfélaga. 
  • Hækkun á gjaldskrám sem varða börn verða 3,5% en aðrar gjaldskrár hækka almennt um 3,9%. 
  • Áætluð íbúafjölgun er 2% og gert er þá ráð fyrir að íbúar verði 13.789 í byrjun árs 2025. 



100 milljónir aukalega í þágu barna og unglinga 

Aðgerðaráætlun í málefnum barna og ungmenna sem hefur fengið nafnið Börnin okkar (mos.is/borninokkar) og byggir á bókun bæjarstjórnar fyrr í haust vegna fjölgunar barnaverndartilkynninga var lögð fram með fjárhagsáætlun. Aðgerðaráætlunin gerir ráð fyrir 100 milljónum aukalega í þágu barna og unglinga og byggir hún á vinnustofum, fundum og samtölum við börn, unglinga, foreldra og forráðamenn þar sem áherslan er á forvarnir, snemmtækan stuðning og styrkingu barnaverndar. Fjármagnið skiptist þannig að 25 milljónir verða notaðar í almennar forvarnir, 42 milljónir í snemmtæka íhlutun og 33 milljónir í barnavernd. 


Hátt fjárfestingarstig 

Fjárfestingar ársins 2025 endurspegla þá miklu uppbyggingu sem er í bæjarfélaginu, auk þess sem áhersla er á viðhald eigna, sérstaklega í skólum og íþróttamannvirkjum. 

Fjárfestingar í stofnunum bæjarins eru áætlaðar um 3 milljarðar króna. Fjárfestingar í gatnagerð og veitnakerfi eru áætlaðar um 2 milljarðar króna.  

Áhersla er lögð á eflingu atvinnuuppbyggingar en stærstu verkefnin í veitum og gatnagerð tengjast til dæmis nýju atvinnusvæði, Korputúni, en auk þess er mikil áhersla lögð á endurnýjun lagna og gatnakerfis í eldri hverfum. 

Nýr leikskóli verður tekinn í notkun í Helgafellshverfi á árinu og er hann ein stærsta einstaka fjárfestingin árið 2025, eða um 830 m.kr. 

Uppbygging Varmársvæðis vegna endurnýjunar á aðalvelli, framkvæmdir við nýja frjálsíþróttabraut og hönnun á nýrri þjónustu og aðkomubyggingu og stúku nemur um 800 milljónum króna. 

Þá verður nýtt íþróttahús tekið í notkun við Helgafellsskóla og nýtt húsnæði verður keypt fyrir skammtímavistun fyrir fötluð börn. 

Þá er lögð mikil áhersla á viðhald eigna í íþróttamannvirkjum og skólabyggingum, auk endurnýjunar á skólalóðum. 

Lægstu leikskólagjöldin á höfuðborgarsvæðinu eru í Mosfellsbæ og er gert ráð fyrir að gjaldskrár sem varða þjónustu við börn hækki einungis um 3,5%, þ.e. í samræmi við markmið kjarasamninganna 2024. 








Viðhengi



Pièces jointes

Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2025-2028 samþykkt 4. desember 2024