Í viku 50 keypti Heimar hf. („Heimar“) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 106.100.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
10.12.2024 | 15:15 | 1.000.000 | 35,2 | 35.200.000 |
11.12.2024 | 09:39 | 1.000.000 | 35,2 | 35.200.000 |
13.12.2024 | 10:20 | 1.000.000 | 35,7 | 35.700.000 |
Samtals | 3.000.000 | 106.100.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 20. nóvember 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025.
Heimar átti 41.445.833 hluti fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 44.445.833 hluti, eða um 2,46% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.455.299.989 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is