Gróska ehf. : Einkaviðræður hafnar um möguleg kaup Heima hf. á öllu hlutafé í Grósku ehf.


Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) og hluthafar Grósku ehf., kt. 680515-1580, hafa í dag komist að samkomulagi um að hefja einkaviðræður um möguleg kaup Heima á öllu hlutafé í Grósku ehf.

Gróska ehf. á fasteignina Grósku að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, sem er um 18.573 m2 að stærð ásamt 6.252 m2 bílakjallara með 205 stæðum, samtals 24.825 m2. Markmið Grósku er að skapa samfélag og grunnstoð nýsköpunar og menntunar á Íslandi.

Verði af viðskiptunum er fyrirhugað að kaupverð verði að öllu leyti greitt með hlutafé í Heimum. Þá munu Heimar yfirtaka skuldabréfaflokkinn GROSKA 29 GB.

Möguleg viðskipti verða háð ýmsum fyrirvörum og skilyrðum. Frekari grein verður gerð fyrir viðskiptunum á síðari stigum eftir því sem tilefni er til og í samræmi við lögbundna upplýsingagjöf félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Vera Antonsdóttir, framkvæmdastjóri Grósku ehf í netfangi: vera@groska.is