Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.
Ellefu tilboð að fjárhæð 2.180 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,29%-7,38%. Tilboðum að fjárhæð 1.520 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7.34%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 15.620 m. kr.
Fjórtán tilboð að fjárhæð 3.980 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,68%-3,74%. Tilboðum að fjárhæð 3.220 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,70%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 46.120 m. kr.
Uppgjörsdagur er 16. janúar 2025.
Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.
Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.
Þessi tilkynning er birt af Landsbankanum hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem innihalda upplýsingar tengdar endurkaupatilboðinu sem lýst er hér að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Hreiðari Bjarnasyni, framkvæmdastjóra fjármála hjá Landsbankanum hf., í samræmi við upplýsingaskyldu Landsbankans hf. samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.