Bæjarstjórn samþykkir niðurstöðu úr skuldabréfaútboði Garðabæjar


Garðabær hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum GARD 11 1.

Heildartilboð í GARD 11 1 voru samtals 2.273,5 m.kr. að nafnverði. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnverði 1.043,5 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,78%. Útistandandi fyrir útboð voru 5.190 m.kr. Heildarstærð flokksins verður nú 6.233,5 m.kr. að nafnverði.

Áætlaður uppgjörsdagur er 25. mars 2026.

Bæjarstjórn hefur staðfest niðurstöðu útboðsins.


GlobeNewswire