Félagsbústaðir hf.: Árshlutareikningur 30.6.2026


Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.06.2026

Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2026 á fundi sínum í dag 1. september.

Sterkur rekstur Félagsbústaða, EBITDA hlutfall hækkar í 48,5%

Sterk fjárhagsleg staða styður áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Félagið tók ekki ný lán á tímabilinu, eiginfjárhlutfall er 52,1% og jafnframt var haldið áfram fjárfestingum í nýjum félagslegum leiguíbúðum.

Rekstur Félagsbústaða styrkist á fyrstu sex mánuðum ársins 2026. Tekjur jukust um 7,2% frá sama tímabili í fyrra. Reksturinn er áfram sterkur þrátt fyrir neikvæða afkomu vegna matsbreytinga og verðbótagjalda

Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir eigna til eigin nota og fjármagnsliði á tímabilinu nam 1.897 m.kr. og rekstrarhagnaðarhlutfallið var 48,5% samanborið við 45,8% á sama tíma árið áður. Þrátt fyrir stöðugan rekstur var rekstrarniðurstaða tímabilsins neikvæð um 3.819 m.kr. Tapið skýrist af lækkun á fasteignamarkaði og auknum verðbótagjöldum.

Sjóðstreymi Félagsbústaða sýnir að veltufé frá rekstri var 1.109 m.kr. samanborið við 964 m.kr. árið áður. Afborganir langtímalána námu 867 m.kr.

Helstu kennitölur reikningsins eru:

  • Tekjur tímabilsins námu 3.914 m.kr.
  • Afkoma fyrir matsbreytingu (EBITDA) nam 1.897 m.kr. eða 48,5% af tekjum
  • Veltufé frá rekstri nam 1.109 m.kr.
  • Matshækkun fjárfestingareigna var neikvæð um 2.295 m.kr. vegna lækkunar á fasteignamarkaði.
  • Virði fjárfestingareigna í lok tímabilsins er 172.716 m.kr.
  • Eigið fé í lok tímabilsins er 90.569 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins er 52,1%
  • Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils nema 69.015 m.kr.

Rekstur og afkoma

Tekjur Félagsbústaða á tímabilinu námu 3.914 m.kr., sem er aukning um 7,2% frá sama tímabili í fyrra. Aukningin skýrist af hækkun leiguverðs vegna verðlagsbreytinga og 1,5% hækkun á leiguverði umfram verðlag sem tók gildi 1.6.2025. Rekstur og viðhald eigna jókst um 55 m.kr. eða um 3,5% á milli ára. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA%) er 48,5% samanborið við 45,8% á sama tíma árið áður.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 173.946 m.kr. í lok tímabilsins en þær drógust saman um 1,1% frá ársbyrjun. Fjárfestingareignir drógust saman um 0,8% eða 1.414 m.kr. á tímabilinu. Nettó fjárfesting var 935 m.kr. en matsbreyting og breyting leigueigna voru neikvæðar um 2.349 m.kr. Heildarskuldir og skuldbindingar nema 83.377 m.kr. og hækkuðu um 1.638 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins. Eigið fé dróst saman um 3.519 m.kr. á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall í lok tímabils var 52,1% en 53,5% í lok árs 2025.

Þróun eignasafns

Á tímabilinu fjárfestu Félagsbústaðir í nýjum eignum fyrir 1.414 m.kr. og bættust 14 nýjar eignir við eignasafn félagsins. Sjö eignir voru seldar á tímabilinu. Áfram var unnið að uppbyggingu á íbúðakjarna við Nauthólsveg 83D sem áætlað er ljúki undir lok árs 2026.

Fjármögnun

Félagsbústaðir eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgja þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru þær aðgengilegar á vefsíðu þess ásamt þeim lögum sem gilda um félagið.

Á tímabilinu fjármagnaði félagið sig með stofnframlögum, söluandvirði eigna og auknu hlutafé en ekki nýrri lántöku. Eitt lán að fjárhæð 32 m.kr. var greitt upp á tímabilinu og var nettó lántaka á tímabilinu var því neikvæð um 32 m.kr.

Félagið gerði einnig samninga um stofnframlög við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og Reykjavíkurborg vegna kaupa og nýbygginga sem námu 532 m.kr. Stofnframlög fjármagna almennt 30% til 34% af stofnvirði nýkeyptra eða nýbyggðra eigna og eru færð sem skuldbinding í efnahag félagsins. Skuldbindingin er uppreiknuð með sömu aðferðafræði og matsbreyting fjárfestingareigna. Skuldbindingin kemur til greiðslu í formi skuldabréfs þegar önnur fjármögnun vegna kaupa eða bygginga hefur verið uppgreidd.

Nánari upplýsingar veitir:

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri, loa@felagsbustadir.is, sími 520 1500

Viðhengi



Pièces jointes

Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.6.2026 Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.6.2026 undirritaður
GlobeNewswire