Fréttatilkynning vegna ársreiknings Sorpu b.s. fyrir árið 2006, sem samþykkt var af stjórn samlagsins þann 26. febrúar 2007. Sorpa b.s er byggðasamlag, sem stofnað er í samræmi við ákvæði VII kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 (áður IX kafla laga nr 8/1986) um samvinnu sveitarfélaga við framkvæmd einstakra verkefna. Tilgangur byggðasamlagsins er að annast sorpeyðingu fyrir sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem öll eru stofnaðilar að því. Sveitarfélögin, sem aðild eiga að byggðasamlaginu, bera "in solidum" einfalda ábyrgð á fjárhagsskuldbindingum þess gagnvart kröfuhöfum. Niðurstöður: Hagnaður Sorpu b.s. á árinu 2006 nam 10 millj.kr. en var 54,7 millj.kr. árið 2005 Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 178,2 millj.kr. á árinu 2006 en var 166,2 millj.kr. á árinu 2005. Rekstrartekjur samlagsins námu 1.694,7 millj.kr. árið 2006 samanborið við 1.498,8 millj.kr. árið 2005 sem er 13,0% hækkun. Rekstrargjöld, án afskrifta og fjármagnsliða voru 1.516,4 millj.kr. samanborið við 1.332,7 millj.kr. 2005 og er hækkunin 13,8%. Heildareignir samlagsins 31. desember 2006 námu 1.793 millj.kr. og heildarskuldir 859,6 millj.kr. Eigið fé 31. desember 2006 var 933,6 millj.kr. og hafði aukist um 13,5 millj.kr. frá því í upphafi árs. Eiginfjárhlutfall var um 52% en var í lok síðasta árs um 58%. Handbært fé frá rekstri á árinu 2006 var 91,9 millj.kr. en var árið 2005 172,4 millj.kr. Veltufjárhlutfall í árslok 2006 var 1,05 og handbært fé nam millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar ársins 2006 námu 177 millj.kr. og fjármögnunarhreyfingar tæpar 104 millj.kr. Reikningsskilaaðferðir: Ársreikningur Sorpu b.s. er gerður í meginatriðum eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður en uppsetningu rekstrarreikningssins hefur verið breytt. Lykiltölur úr ársreikningum fjárhæðir í þús.kr. Rekstrarreikningur: 2006 2005 2004 2003 2002 Rekstrartekjur........................ 1.694.678 1.498.832 1.341.938 1.221.589 1.160.412 Rekstrargjöld......................... 1.516.419 1.332.668 1.193.645 1.089.635 1.030.283 Hagnaður f. afskriftir............... 178.259 166.164 148.293 131.954 130.129 Afskriftir................................ 105.567 97.966 69.707 56.380 54.567 Hagnaður f. fjárm.liði ............. 72.693 68.198 78.586 75.574 75.562 Fjármagnsliðir....................... (62.673) (13.488) (24.703) (47.412) (30.193) Hagnaður (tap) ársins............. 10.020 54.710 53.883 28.162 45.369 Efnahagur: Fastafjármunir....................... 1.372.561 1.294.154 1.467.814 1.403.467 1.334.758 Veltufjármunir....................... 420.724 291.318 228.286 236.011 226.819 Eignir samtals....................... 1.793.284 1.585.471 1.696.100 1.639.478 1.561.577 Eigið fé ............................... 933.644 920.066 862.021 796.899 765.874 Langtímaskuldir.................... 459.574 377.223 575.728 694.040 667.447 Skammtímaskuldir................ 400.066 288.182 258.351 148.539 128.256 Eigið fé og sk. samtals........... 1.793.284 1.585.471 1.696.100 1.639.478 1.561.577 Sjóðsstreymi: Handbært fé frá rekstri................... 91.903 172.382 143.890 165.274 67.105 Fjárfestingahreyfingar..................... (177.559) (117.050) (11.843) (95.496) (109.888) Fjármögnunarhreyfinga................... 103.961 (228.699) (40.796) (14.807) (14.390) Hækkun(lækkun)á handbæru fé.... 18.305 (173.367) 91.251 54.971 (57.172) Handbært fé í upphafi árs................ 121.106 294.473 203.222 28.083 85.256 Handbært fé í lok árs .................... 139.412 121.106 294.473 83.055 28.083 Helstu kennitölur félagsins Veltufjárhlutfall ............................ 1,05 1,01 1,70 1,59 1,77 Eiginfjárhlutfall.............................. 52,06% 58,03% 50,82% 48,61% 49,04% Arðsemi eigin fjár .......................... 1,08% 6,14% 6,50% 3,60% 6,12% Meðalfj. starfsmanna..................... 90 85 85 82 81 Horfur: Rekstur Sorpu b.s. á árinu 2006 er að mestu í samræmi við áætlanir samlagsins fyrir utan fjármagnsliði og er ekkert sem bendir til annars en að rekstur ársins 2007 verði í samræmi við áætlanir fyrir árið 2007.
Sorpa - Ársuppgjör 2006
| Source: Sorpa