Hagnaður samstæðu SPRON 9,0 milljarðar króna eftir skatta Arðsemi eigin fjár 58,7% "Rekstur SPRON á árinu 2006 var einstaklega árangursríkur. Mikill vöxtur og góð afkoma einkenndi alla starfsemi fyrirtækisins. Hagnaður SPRON á árinu 2006 er sá langmesti frá upphafi og hagnaður af rekstri SPRON liðlega tvöfaldaðist frá árinu 2005. SPRON hefur lagt áherslu á að byggja upp fleiri afkomuþætti til að renna traustari stoðum undir tekjustreymi fyrirtækisins. SPRON Verðbréf hóf formlega starfsemi á árinu og var SPRON Verðbréfum og verðbréfasjóðum SPRON einstaklega vel tekið af viðskiptavinum okkar. Arðsemi eigin fjár var einstök, eða tæplega 60% og er langt yfir 15% arðsemismarkmiði SPRON.", segir Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri SPRON. "Auk þeirra verðmæta sem góður hagnaður hefur myndað greiddu stofnfjáreigendur mikið af nýju stofnfé til sparisjóðsins og því hefur eigið fé hans vaxið verulega. Eigið fé SPRON jókst um 167% á árinu og er nú 34,8 milljarðar króna. Heildareignir samstæðunnar námu 184,5 milljörðum í árslok og hafa vaxið um 61% frá árslokum 2005. Sú mikla áhersla sem lögð hefur verið á þjónustugæði og uppbyggingu innri verðmæta SPRON endurspeglast í góðri afkomu og ánægju viðskiptavina og starfsfólks. Í mælingu á íslensku ánægjuvoginni 2006 kemur fram að viðskiptavinir SPRON eru ánægðustu viðskiptavinir fjármálafyrirtækja á Íslandi. Fjárhagslegur styrkur SPRON hefur margfaldast á nokkrum árum og er fyrirtækið vel undir það búið að takast á við áskoranir framtíðarinnar á vettvangi fjármálaþjónustu." Helstu kennitölur 2006 2005 2004 2003 2002 Kostnaðarhlutfall .......................... 26,4% 36,7% 50,3% 55,3% 66,7% Vaxtamunur .................. 1,6% 2,4% 3,8% 3,8% 3,7% Arðsemi eigin fjár e. skatta ............... 58,7% 61,5% 36,0% 21,0% 23,0% Framlag í afskriftarreikning sem hlutfall af útlánum 0,2% 0,5% 0,9% 1,8% 1,6% Eiginfjárhlutfall (CAD) ............................... 20,2% 13,6% 10,4% 12,8% 11,5% Eiginfjárhlutfall (eiginfjárþáttur A) ................. 31,1% 19,6% 12,3% 10,0% 9,3% Afskriftarreikningur útlána sem hlutfall af útlánum og veittum ábyrgðum ............... 0,9% 1,2% 2,0% 2,8% 2,9% Stöðugildi í lok árs ..................... 245 206 184 183 181 Innlán sem hlutfall af útlánum til viðskiptavina ........ 44,1% 46,3% 72,1% 80,4% 69,7% Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag " Hagnaður af rekstri SPRON samstæðunnar eftir skatta var 9.010 millj. kr. og jókst um 120% frá árinu áður. " Arðsemi eigin fjár var 58,7%. " Hreinar rekstrartekjur ársins 2006 námu alls 15.196 millj. kr. sem er 82% aukning frá fyrra ári. Hreinar vaxtatekjur námu 2.415 millj. kr. og jukust um 9% milli ára. Aukið vöruúrval SPRON skilaði sér í auknum þjónustutekjum á árinu, en hreinar þjónustutekjur jukust um 67% frá fyrra ári og námu 975 millj. kr. á árinu. Veigamesti þáttur í tekjumyndun ársins var hagnaður af fjárfestingum sparisjóðsins og vegur þar þyngst hlutabréfaeign í Exista. " Vaxtamunur sparisjóðsins sem hlutfall af meðalstöðu fjármagns hefur lækkað og var 1,6% á árinu 2006 samanborið við 2,4% á árinu 2005. Vaxtamunur hefur lækkað frá fyrri árum með stækkun efnahags og breyttri útlánasamsetningu. Á sama tíma hafa vanskil og afskriftir lækkað töluvert og eru nú hlutfallslega lægri en nokkru sinni fyrr. " Framlag í afskriftareikning útlána lækkaði um tæp 6% frá árinu áður og nam alls 308 millj. kr. Afskriftareikningur útlána sem hlutfall af útlánum og veittum ábyrgðum er 0,9% í lok ársins og lækkaði úr 1,2%. " Rekstrarkostnaður SPRON jókst nokkuð, en þó hefur kostnaðarhlutfall SPRON aldrei verið lægra og nam 26% á árinu. " Niðurstaða efnahagsreiknings var 184,5 milljarðar kr. og hefur hækkað um 61% frá upphafi árs 2005, eða um tæpa 70 milljarða kr. " Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 128.296 millj. kr. í lok ársins og hækkuðu um samtals 43.345 millj. kr. eða 51% á árinu. " Heildarinnlán SPRON í lok ársins námu alls 56.592 millj. kr. og hækkuðu um samtals 17.252 millj. kr. eða tæp 44%. Innlán sem hlutfall af útlánum til viðskiptamanna námu 44%. " Eigið fé í lok tímabilsins nam 34.746 millj. kr. og hefur hækkað um 21.730 millj. kr. frá upphafi árs 2006 eða 167%. " Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON samstæðunnar í lok ársins var 20,2%. Lágmarkshlutfall samkvæmt lögum er 8,0%. Eiginfjárþáttur A er 31,1%. " Ársreikningurinn er birtur í samræmi við alþjóðlegar reglur um gerð samstæðureikningsskila (IFRS). Aðalfundur sparisjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 8. mars næstkomandi og mun stjórn SPRON leggja fram tillögu um að greiddur verði 46% arður til stofnfjáreigenda. Auk endurmats vegna verðlagsbreytinga mun stjórn sparisjóðsins leggja til að nýtt verði heimild í lögum um sérstakt endurmat stofnfjár og það hækkað um 5,0%. Allar frekari upplýsingar veitir undirritaður í síma 550 1200. Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri Helstu lykiltölur úr rekstri SPRON 2002-2006 Milljónir króna 2006 2005 Breyting 2004 2003 2002 Tekjur Vaxtatekjur ....................... 14.537 7.884 84,4% 5.547 4.950 4.534 Vaxtagjöld ......................... -12.123 -5.659 114,2% -3.272 -2.964 -2.845 Hreinar vaxtatekjur 2.415 2.225 8,5% 2.275 1.986 1.689 Þjónustutekjur .................. 1.307 881 48,3% 859 820 735 Þjónustugjöld ................... -331 -297 11,6% -243 -214 -192 Hreinar þjónustutekjur 975 584 67,0% 616 606 543 Hreinar tekjur af fjáreignum og fjárskuldum ........... 10.115 4.366 131,7% 1.757 1.114 353 Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga .......... 1.407 597 135,8% 224 62 105 Aðrar rekstrartekjur ................. 284 576 -50,6% 135 38 230 Aðrar rekstrartekjur 11.806 5.538 113,2% 2.116 1.214 688 Hreinar rekstrartekjur 15.196 8.347 82,1% 5.007 3.806 2.920 Gjöld Laun og launatengd gjöld .......... -1.926 -1.551 24,2% -1.299 -1.072 -908 Annar rekstrarkostnaður ........... -1.974 -1.433 37,7% -1.208 -1.007 -984 Afskriftir .................................. -109 -81 35,0% -45 -48 -76 Rekstrarkostnaður ...... -4.009 -3.065 30,8% -2.553 -2.127 -1.968 Virðisrýrnun útlána .............. -308 -327 -5,6% -470 -668 -591 Afskrift viðskiptavildar ............ 0 0 - 0 -165 -89 Hagnaður fyrir skatta 10.879 4.956 119,5% 1.984 846 272 Tekjuskattur ................ -1.869 -863 116,4% -355 -42 462 Hagnaður 9.010 4.092 120,2% 1.629 804 734 Eignir Sjóður og óbundnar innstæður í Seðlabanka.................... 2.432 2.068 17,6% 1.540 416 670 Kröfur á lánastofnanir .............. 7.223 6.294 14,8% 5.427 3.283 2.458 Útlán til viðskiptamanna ........... 128.296 84.950 51,0% 49.278 37.199 35.915 Veltufjáreignir ........................ 20.313 8.367 142,8% 5.953 6.382 2.905 Fjáreignir á gangvirði .............. 16.749 7.991 109,6% 3.290 1.438 6.271 Hlutir í hlutdeildarfélögum ......... 4.580 1.647 178,2% 1.028 804 1.015 Óefnislegar eignir ................. 1.675 1.619 3,5% 1.536 1.505 1.562 Rekstrarfjármunir ............. 992 1.016 -2,4% 176 211 238 Aflögð starfsemi og fastafjármunir til sölu .. 105 103 1,9% 126 343 80 Aðrar eignir ........................ 2.136 874 144,3% 400 321 521 Eignir samtals 184.501 114.929 60,5% 68.754 51.902 51.635 Skuldir Innlán frá fjármálafyrirtækjum og Seðlabanka ........................ 11.524 11.210 2,8% 7.211 1.050 7.095 Almenn innlán ........................ 56.592 39.340 43,9% 35.523 30.180 25.070 Lántaka ................... 69.642 44.445 56,7% 16.425 13.117 12.550 Víkjandi lán .................. 5.216 3.918 33,1% 1.924 1.849 1.806 Veltufjárskuldir ................. 361 120 200,3% 111 0 29 Lífeyrisskuldbindingar ............. 646 559 15,5% 509 356 315 Skattskuld .................... 3.013 1.249 141,2% 469 160 114 Aðrar skuldir ..................... 2.731 1.070 155,3% 763 565 597 Skuldir samtals 149.726 101.912 46,9% 62.935 47.277 47.576 Stofnfé ............... 19.454 3.961 391,2% 604 539 514 Varasjóður .................. 15.292 9.055 68,9% 5.214 4.059 3.373 Stofnfé og varasjóður samtals 34.746 13.016 166,9% 5.818 4.598 3.887 Hlutdeild minnihluta .................. 29 1 2257,5% 1 27 172 Eigið fé samtals 34.775 13.017 167,1% 5.819 4.625 4.059 Skuldir og eigið fé samtals 184.501 114.929 60,5% 68.754 51.902 51.635
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis - Ársuppgjör 2006
| Source: SPRON