HB Grandi - Selur Engey RE 1 til Samherja


HB Grandi hf. hefur samið við Samherja hf. um sölu á Engey RE 1.  Skipið verður afhent 22. mars 2007.  Söluverð skipsins er 31,4 milljónir evra og bókfærður hagnaður af sölunni í kringum 700 milljónir króna. 

Af þessum sökum er fallið frá áður tilkynntum áætlunum um að selja Engey til dótturfélags HB Granda, Atlantic Pelagic, og gera hana út við strendur Afríku. 

GlobeNewswire