Atorka Group eykur við hlut sinn í Romag


Atorka Group hefur bætt við hlut sinn í Romag og á eftir kaupin um 16% eignarhlut. Kaupverð viðbótarhlutarins er um 235 milljónir króna og nemur heildar markaðverðmæti eignarhlutar Atorku tæpum 2 milljörðum króna. Romag er leiðandi framleiðandi á heimsvísu á sérhæfðum glerlausnum sem nýta birtu til rafmagnsframleiðslu (e. photovoltaic glass) en mikill vöxtur er á þeim markaði.  Velta Romag á þessum lausnum óx um 300% á síðasta ári. Félagið er einnig leiðandi í framleiðslu á skotheldu öryggisgleri fyrir byggingar og farartæki.  Kaupin voru fjármögnuð með handbæru fé. Romag er skráð á AIM markaðinn í London en nánari upplýsingar um félagið má finna á www.romag.co.uk  

Frekari upplýsingar veitir Magnús Jónsson, forstjóri Atorku í síma 540 6200
GlobeNewswire